Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 85
NÁBÝLIÐ VIÐ HÉRAÐSVÖTN
til að sækja Eystein, en hann hafði
komið á hestum utan frá Egg kvöldið
áður, enda bílvegur þá ekki kominn
lengra en í Egg. Haft hafði verið sam
band við Jón as Kristjánsson lækni, og
kom hann með bílnum frameftir til að
hlúa að Sveini.
Féð var jafnan sett fram á Borgar
eyju í byrjun sauðburðar. Var þá oftast
rekið yfir báðar kvíslarnar, Austur
kvísl og Suð urkvísl, eftir að svifferjan
var aflögð. Þó kom það fyrir að ferjað
var yfir. Ef ég man rétt var ferjað yfir
Austurkvíslina vorið 1939. Pramm
inn var ekki stór, tók 6–8 kindur í
ferð. Í einni ferðinni gerðist það að
pramminn hreinlega sökk, sem svo var
kallað, trúlega verið ofhlaðinn, það
flæddi yfir borðstokkana og pramm
inn fylltist. Ærnar fóru að sjálfsögðu
útbyrðis, einnig Sveinn og Þorleifur,
en þeir voru í ferjunni. Þeir voru báðir
í klofbússum. Kvíslin var ekki til
takanlega breið þarna, en mjög djúp.
Þorleif ur hafði lært eitthvað að synda í
Lauga skóla nokkrum árum áður, en
lítt haldið þeirri kunnáttu við. Það
létt i Þorleifi sundið, að hann missti
bússurnar af sér og þær hurfu í straum
inn. Konráð var á norðurbakka kvísl
arinnar ásamt fleirum. Sveinn gat haft
samband við hann og beðið hann að
koma þeim til aðstoðar. Hann fór
þegar útí, þurfti nær strax að grípa
sundtökin og synti til þeirra fé laga.
Allt fór þetta þó vel um síðir.
Þegar féð var rekið yfir kvíslarnar
var gjarnan vaðið með því og reynt að
koma í veg fyrir að það hrekti mikið
undan straumnum. Hin síðari ár var
þó farið að ferja féð yfir bæði haust og
vor, eftir að flatbyttan (flatbotna ferj
an) var smíðuð.
Meðan sauðburður stóð yfir var farið
til fjárins tvisvar á dag. Á Borgar
eyjunni var féð haft þar til það var
Flóð í Héraðsvötnum. Myndin tekin af Austureyjunni vestur til bæjar. Í fjarska Vestur-
fjöllin þar sem Sauðafell ber yfir Kerlingarháls. Vatnaöxl til vinstri en Staðaröxl til hægri.
Einkaeign.
85