Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 146
SKAGFIRÐINGABÓK
og segi: „Þekkjumst við?“ Segir hann
mér þá að hann hafi komið til
Sauðárkróks með flóabátnum Mjölni,
en hann var í föstum ferðum milli
Siglu fjarðar og Sauðárkróks að flytja
póst, mjólk og annan varning. Faðir
hans var Skafti frá Nöf, skipstjóri og
eigandi bátsins. Þetta mun hafa verið
á árabilinu frá 1941–1943. Hafði ég
verið að sniglast niðri á bryggju. Ég
hafði síðan farið með hann um
Krókinn að sýna honum það mark
verðasta. Þegar við komum til baka
hafi pabbi hans tekið mig, sett mig
upp á olíutunnu og látið mig syngj a
Danny Boy. Þessi maður heitir Gunn
laugur Tryggvi Skaftason og er skrif
stofumaður í Reykjavík. Það sem mér
fannst merkilegt var að hann skyld i
þekkja mig eftir öll þessi ár því þegar
þetta gerðist var ég sjálfsagt um það
bil 8 eða 10 ára og hafði aldrei hitt
þennan mann eftir það. Ég mun hafa
verið um sextugt þegar við hittumst
þarna.
Nágrannar
Ég ætla nú að fara nokkrum orðum
um nágranna okkar í næstu húsum. Í
næsta húsi við Höepfner var Villa
Nova. Þar áttu Valgard Blöndal og
Jóhanna kona hans heima. Um Val
gard mætti margt segja. Hann hafði á
hendi eftir föður sinn bóksölu og rit
fangaverslun. Einnig var hann með
póstafgreiðslu til margra ára. Þá var
hann umboðsmaður fyrir Flugfélag Ís
lands. Þau Valgard og Jóhanna ráku
um tíma hótel í Villa Nova og var þar
rausnarlega að öllu staðið. Þá rak
Jóhanna tískuvöruverslun í mörg ár
eftir að hún var komin yfir miðjan
aldu r og gekk sú verslun, að ég hygg,
ágætlega.
Valgard var meðalhár vexti en
svolítið feitlaginn, ávallt snyrtilegur
til fara, alltaf með þverslaufu, í
hneppt u vesti og með ermahaldara um
olnboga. Hann gekk ávallt með gler
augu og voru glerin í þeim kringlótt.
Hann var mjög góður leikari og tók
þátt í flestum uppfærslum hjá leik
félaginu. Ætíð var hann manna
skopvísastur á leiksviðinu. Eitt sinn
fór hann til Hamborgar. Sendi hann
þá Guðjóni bakara póstkort af ráðhús
inu í Hamborg sem var mjög stórt og
veglegt, og undir myndina skrifaði
hann að það stæðist náttúrlega engan
Á góðri stund, f.v.: Hafsteinn Sigurðsson
(sem kenndi Herði Danny Boy, lag og
texta), Jósep Ólafsson Veðramóti, Ingólfur
Andrésson og Maríus Sölvason.
146