Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 125
ÆSKUMINNINGAR FRÁ SAUÐÁRKRÓKI
hann mér sparisjóðsbók með þessari
upphæð á fermingardaginn minn. En
verðbólgan sá til þess að þessir aurar
urðu að engu.
Við áttum heima í Höepfner til árs
ins 1948. Þar átti ég mín æskuár. Ég
var fremur latur að læra en aðstæður
til heimanáms voru nánast engar sök
um þrengsla heima fyrir. Ég fór á síld
veiðiskip árið 1948, Sigrúnu frá Akra
nesi. Þá var ég fimmtán ára. Það er
eftirminnilegur tími. Eftir áramót
1948–49 fór ég á samning í bakaraiðn
hjá Guðjóni Sigurðssyni bakarameist
ara í Sauðárkróksbakaríi og var jafn
framt samið um að ég yrði í fullu fæði
hjá þeim Guðjóni og Ólínu meðan á
samningnum stæði eða í fjögur ár.
Þegar ég hafði lokið bakaranáminu fór
ég til Þrándheims í Noregi að vinna
þar í bakaríi til að víkka sjóndeildar
hringinn og læra meira í faginu. Ég
var þar í eitt ár, en bróðir minn Hauk
ur var þar á sama tíma í mjólkur
fræðinámi. Að því loknu fór ég aftur
að vinna hjá Guðjóni og var ég hjá
hon um til ársins 1958, en þá flutti ég
til Akraness.
Konan mín
Árið 1955 kynnist ég konu minni,
Ingu Þóreyju Sigurðardóttur. Við
gift um okkur 17. nóvember 1956 í
Sauðárkrókskirkju. Hún er ættuð frá
Hellissandi. Fyrsta barn okkar, sem
var dóttir, fæddist á Sauðárkróki 23.
desember 1956, löngu fyrir tímann og
var aðeins fjórar merkur. Hún var flutt
til Akureyrar, sett þar í súrefniskassa
og var þar í þrjá mánuði. Þegar við
náðum í hana að þremur mánuðum
liðnum var hún orðin níu merkur.
Börn okkar Ingu eru fjögur: Guðrún
Bryndís, fædd 23. desember 1956,
áður nefnd, Sigurður Páll, fæddur 16.
júlí 1961, Hörður, fæddur 31. júlí
1965 og Sigríður Anna, fædd 5. júlí
1974.
Fluttumst til Akraness
Við fluttumst til Akraness 15. sept
ember 1958; Bjarni Haraldsson flutti
okkur. Tók ég þá við rekstri Alþýðu
brauðgerðarinnar en eigendur hennar
voru nokkrir Alþýðuflokksmenn á
Akranesi. Árið 1963 kaupi ég svo
brauðgerðina og nefni hana Harðar
bakarí hf. Reksturinn hjá mér gekk
Inga Þórey Sigurðardóttir og
Hörður Pálsson 1956.
Ljósm.: Stefán Pedersen.
125