Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 55
55
ANDRÉS BJÖRNSSON ÚTVARPSSTJÓRI
níðist því sem honum er til trúað.
Eng an veit ég ólíklegri til að áþyngja
öðrum mönnum vitandi vits. Um-
hyggj a hans fyrir þeirri stofnun sem
honum er falið að forsorga og fólkinu
þar er einlæg. Töluvert argsamt starf
útvarpsstjórans – og einatt vanþakk-
látt er varla auðvelt viðfangs fyrir
mann með hans skapgerð.“ (Raupað úr
ráðuneyti, 259).
Ég hafði sjálfur áratugalöng kynni af
Andrési sem kennara, leiðbeinanda,
yfirmanni, vini og sálufélaga að bók-
menntaáhuga og skáldskaparyndi. Á
ég honum margt gott upp að inna. Ég
tel mig fyllilega dómbæran um gerð
hans og ævistarf, eftir því sem unnt er
að kynnast mönnum, og get tekið
und ir margt í lýsingum annarra sam-
ferðamanna á honum. Æskuvinur
hans, Jón Þórarinsson, segir í eftir-
mælum, að í sínum huga hafi Andrés
alltaf verið bókmenntamaður fyrst og
fremst og telur mikinn skaða að hann
skyldi ekki helga sig ritstörfum meir
en raun varð. Það er auðvitað rétt og
frá því sjónarmiði er miður farið að
hann skyldi verja mestu af orku sinni
á starfsævinni í stjórnunarstörf við
stærsta fjölmiðil landsins. En þessi
urðu örlög hans og það verður ekki
harmað. Raunar má segja að fremur
ætti að óska þess að menn eins og
Andr és réðu meiru í stjórn áhrifa-
mikilla fjölmiðla. Það var jafnan gott
að eiga Andrés Björnsson að. Í sögu
Ríkisútvarpsins á hann traustan sess.
Hann var maðurinn sem með gáfum
sínum, menningarlegum sjónarmiðum
og góðvild stýrði þessari viðkvæmu og
þýðingarmiklu stofnun þjóðarinnar
yfir ólgusjó mikilla breytinga. Það er
svo eftirtímans að meta slíkan mann
réttilega. Í því mati felst um leið
skoðun á því hvort sá grundvöllur sem
hann stóð á föstum fótum muni enn
geta – að breyttu breytanda – reynst
undirstaða fyrir íslenskar menningar-
stofnanir á tuttugustu og fyrstu öld-
inni.
Heimildir
Alþingistíðindi B deild, 1969.
Andrés Björnsson [eldri]: Ljóð og laust mál.
Rvík 1940. Inngangur eftir Árna Páls-
son: „Andrés Björnsson. Fáein minning-
ar orð“. Endurpr.: Árni Pálsson: Á víð og
dreif, Ritgerðir. Rvík 1947.
Andrés Björnsson: Töluð orð. Áramóta-
hugleiðingar 1968–1984. Rvík 1985.
Andrés Björnsson: Minningargrein um
Þórarin Björnsson. Þ.B.: Rætur og væng-
ir. Mælt og ritað frá æskuárum til æviloka
II. Rvík 1992. Greinin birtist upphaf-
lega í Alþýðublaðinu 6. febrúar 1968.
Andrés Björnsson: „Að leiðarlokum. Sigurð-
ur Nordal, minning“. Mbl. 27. septem-
ber 1974.
Andrés Björnsson: „Helgi Hjörvar, minn-
ing“. Mbl. 4. janúar 1966.
Andrés Björnsson: „Pálmi Jónsson, minn-
ing“. Mbl. 12. apríl 1991.
Andrés Björnsson: „Útvarpið og löggjafar-
valdið“. Útvarpserindi 21.12.1980.
Ársskýrsla Ríkisútvarpsins 1980.
Andrés Björnsson: „Þar var ég aðeins í
huganum“. (Frá lýðveldisstofnun 1944).
Mbl. 17. júní 1994.
Andrés Björnsson: „Ræða í Hallgrímskirkju
í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd 1982.“
Ríkisútvarpið. Segulbandasafn.
Árbók Háskóla Íslands 1942–43.
Einar Laxness: „Andrés Björnsson, minn-
ing“. Mbl. 8. janúar 1999.
Emil Björnsson: Litríkt fólk. Æviminningar
II. Rvík 1987.