Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 28
28
SKAGFIRÐINGABÓK
heldur og ekki síður í samtölum.
Munu okkur, samstarfsmönnum
hans, verða ógleymanlegar margar
skemmtilegar stundir yfir gaman-
málum, þar sem hann lét gamminn
geisa. (Mbl. 4. janúar 1966).
Þremur árum eftir að Andrés hóf störf
hjá Ríkisútvarpinu festi hann ráð sitt.
Hann kvæntist 3. júlí 1947 Margréti
Helgu Vilhjálmsdóttur, fæddri 1920.
Hún er dóttir Vilhjálms Ketilssonar
bónda og kennara í Kirkjuvogi í
Höfn um og Valgerðar Jóakimsdóttur.
Margrét er mikil atorkukona og vílar
ekk ert fyrir sér. Þau Andrés og Mar-
grét settu saman heimili í Reykjavík.
Þau eignuðust fjögur börn: Valgerði,
1949, Vilhjálm Kristin, 1951, Ólaf
Bjarna, 1955, og Margréti Birnu,
1957.
Á fyrstu starfsárum sínum við Ríkis-
útvarpið fékkst Andrés við ýmisleg
aukastörf, var til dæmis stundakenn-
ari við Menntaskólann í Reykjavík
1944–45, hafði raunar kennt þar með-
fram háskólanámi sínu 1942. Þá
samd i hann ritgerðir og greinar um
Hóf starfsmanna og útvarpsráðsmanna á Hótel Borg, líklega 22. febrúar 1949, að loknum
1000. fundi útvarpsráðs. Sitjandi í fremri röð f. v.: Dagbjört Guðmundsdóttir, Björg Jónas-
dóttir, Valgerður Tryggvadóttir, Finnborg Örnólfsdóttir, Jónas Þorbergsson, Sigrún Gísladótt-
ir, Þórleif Norland, Guðbjörg Benediktsdóttir. Standandi í aftari röð f. v.: Jón Þórarinsson,
Gunnlaugur Briem, Magnús Jónsson, Emil Björnsson, Baldur Pálmason, Páll Ísólfsson,
Jóhann Hafstein, Högni Torfason, Andrés Björnsson, Þorsteinn Egilson, Jakob Benediktsson,
Stefán Jónsson, Ólafur Jóhannesson, Jón Magnússon, Helgi Hjörvar, Hendrik Ottósson, Axel
Thorsteinson.