Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 98
SKAGFIRÐINGABÓK
4 Í bókinni Kirkjur Íslands 6 (2005, 214), er greinargerðin um legstein Kristínar fyrir mistök
höfundarmerkt Kristjáni Eldjárn: KE, þó að steinninn hafi ekki fundist fyrr en sex árum eftir að
Kristján dó. Í formála Þorsteins Gunnarssonar að bókinni Um Hóladómkirkju (1993) kemur fram
að Halldóra Eldjárn veitti leyfi til þess að umfjöllun Kristjáns um legsteina og kirkjugripi, úr
bæklingnum Um Hólakirkju (1950, 2. útg. 1963), yrði enduskoðuð og aukin í ljósi nýrra upp
lýsinga. Breytingar og viðaukar við texta Kristjáns nema alls um helmingi lesmálsins. Því orkar
tvímælis að vitna til þeirra viðauka með tilvísuninni Kristján Eldjárn (1993) eða Kristján Eld
járn (2005).
5 Talsvert hefur verið fjallað um þessa töflu í seinni tíð, t.d. Þóra Kristjánsdóttir (2004, 335–337
og 2005, 70–71).
Kristín hefur dáið í ágúst 1682, og
gæti hún þá hafa verið á bilinu 9–11
ára gömul. Af úttektinni 1685 má
álykta að hún hafi verið grafin innan
kirkju. Legsteinn eftir Guðmund
Guð mundsson frá Bjarnastaðahlíð var
settur á gröfina.
Um lýsingu á legsteininum skal
vísað til greinarinnar í Skagfirðinga bók
21, (1992, 88). Áletrunin með stuttri
samantekt var tekin upp í bók Þor
steins Gunnarssonar (og Kristjáns
Eld járns): Um Hóladómkirkju (1993,
103–105), og felld þar inn í umfjöllun
Kristjáns Eldjárns um minningar
mörk í kirkjunni. Úr þeirri bók var
textinn svo tekinn upp í ritröðina
Kirkjur Íslands 6 (2005, 213–214),
þar sem fjallað er um Hóladóm kirkju.
Ef kemur til endurútgáfu þess ara rita
þyrfti að leiðrétta grafskrift ina.4
Skömmu eftir að legsteinninn fannst
var hann fluttur á Þjóðminjasafnið.
Hann var síðar fluttur aftur norður og
er nú í Hóladómkirkju, á stalli í for
kirkjunni, hægra megin þegar gengið
er inn.
Minningartafla Hólmfríðar Sigurðardóttur
Af því að hér hefur verið minnst á
Hólmfríði Sigurðardóttur, ömmu
Krist ínar Torfadóttur, er tækifæri til
að koma á framfæri viðbótarupplýs
ingum um minningartöflu með mynd
af henni, sem talin er eftir síra Jón
Guðmundsson á Felli í Sléttuhlíð
(Þjms. 402).5 Á töflunni eru eftirfar
andi minningarorð á latínu, undir
elegískum bragarhætti:
Holmfride vultus si vis vidisse decoros;
Effigies oculis sistitur hæcce tuis.
Orta fuit Magnis, Patet hoc, Natalib(us): At non
Est minor hic Radix Semine, crede, / Suo
Non ignota loqvor: casta Pietate coegit
In laudes omnes candida quippe suas.
Addita Cælicolis anima e(st); hæc corpora poscu(n)t
Justa sibi. Tumuli nota peren(n)is eru(n)t. C
98