Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 122
SKAGFIRÐINGABÓK
lestrar og var hann sammála Ólafi
Hauki um útgáfu ljóðanna. Við fórum
með handritið til Hafsteins Guð
mundssonar hjá bókaútgáfunni Þjóð
sögu. Hann tók okkur mjög vel. Síðan
hafði hann samband við mig að
tveimur dögum liðnum og samþykkti
að gefa bókin út gegn því skilyrði að
ég keypti 200 eintök af henni sem ég
samþykkti. Hafsteinn var mikill fag
maður og fagurkeri um útlit og frá
gang bóka og ber bók móður minnar
þess glöggt vitni að þar fór listamaður
höndum um bókina.
Flutt til Keflavíkur
Eftir að þau mamma og pabbi slitu
samvistum 1950 fór hún æðimargar
ferðir suður með sjó að starfa þar við
fiskvinnslu. Árið 1961 fluttist hún til
Keflavíkur, keypti sér þar fljótlega
íbúð og vann fyrstu árin í frystihúsi,
en réðist síðan til afgreiðslustarfa í
kjörbúð Kaupfélagsins í Keflavík.
Leið henni þar mjög vel og átti hún
þar trúlega sín bestu ár. Mamma var
vel í meðallagi hávaxin, hún var vel
vaxin og grönn fram eftir aldri en
gildnaði nokkuð þegar hún var komin
yfir miðjan aldur. Hún var með mikið,
þykkt og dökkt hár, dökkgrá augu,
var sviphrein og bar sig vel.
Systkinahópurinn
Haukur Frímann
Við systkinin vorum sex talsins. Elst
ur var Haukur Frímann. Hann fædd
ist á Sauðárkróki 20. janúar 1931.
Hann var settur í fóstur á Skagaströnd
en kom heim til okkar 8–9 ára gamall.
Haukur var kjarkmikill strákur og
hafði gaman af alls konar aflraunum.
Hann var dökkur yfirlitum og bar
svipmót beggja foreldra sinna. Hann
fór ætíð mjög vel með fé og því átti
hann jafnan nóg fyrir sig. Ég er ekki
að halda því fram að hann hafi verið
nískur, en aðhaldssamur. Hann fór
ungur að vinna fyrir sér. Um fermingu
fór hann að vinna hjá Steindóri Jóns
syni við ýmis störf, svo sem að saga
rekavið, sem Steindór keypti utan af
Skaga og eins austan fjarðar, og við
ýmis önnur störf. Hann komst svo að
hjá Mjólkursamlagi Kaupfélags Skag
firðinga og tveim – þrem árum seinna
fór hann í mjólkurfræðinám til Þránd
heims í Noregi og brautskráðist þaðan
sem mjólkurfræðingur 1955. Réðst
hann þá til Mjólkursamlags K.S. sem
ostagerðarmeistari og vann til margra
verðlauna í ostagerðarlistinni. Hann
kvæntist Sigurlaugu Steingrímsdótt
ur frá Hvammi í Vatnsdal og eiga þau
þrjú börn. Þau eru Steingrímur, Sig
rún og Theódóra. Um tíma fluttust
þau til Kópavogs og fór hann að vinna
hjá sælgætisgerðinni Víkingi og var
þar í ein þrjú ár. Fluttist hann aftur
norður á Sauðárkrók og fór að vinna
hjá Mjólkursamlagi K.S. og lauk þar
starfsævi sinni rétt fyrir sjötugt. Flutti
hann þá suður í Garðabæ, keypti sér
íbúð í blokk í Nónhæð 2 og bjó þar til
dauðadags, 13 júní 2011.
Óskar Sveinbjörn
Næstur í aldursröð var Óskar Svein
björn. Hann fæddist á Skagaströnd 3.
mars 1932. Hann var bráðger og
hraustur strákur, mjög kjarkaður og
gerði sér til dæmis það að leik þegar
122