Saga


Saga - 2012, Page 215

Saga - 2012, Page 215
eru fornleifarannsóknir hér á landi í raun mjög skammt á veg komnar. Mörgum mikilvægum og spennandi spurningum er ósvarað um þróun landnýtingar, eins og glöggt má sjá í kaflanum um tún og túngarða svo dæmi séu nefnd (bls. 139–141). Á nokkrum stöðum veltir Birna fyrir sér hvernig hugarfar, trú og valda- barátta kunni að hafa mótað áherslur fólks við landnýtingu á fyrri tíð. Engin einhlít svör eru til við þessum vangaveltum en þær hjálpa lesandanum að tengjast efninu betur og setja sig inn í aðstæður forfeðranna sem byggðu mannvirkin sem bókin fjallar um. Slíkum hugleiðingum hefði jafnvel mátt gefa meiri gaum en þó ber að hafa í huga að aðeins fáar rannsóknir með slíka nálgun hafa farið fram hér á landi þrátt fyrir sívaxandi áhuga á þeim. Hugarheimur fortíðarinnar er spennandi og verðugt rannsóknarefni og varpar bókin þarna ljósi á efni sem þarfnast frekari rannsókna. Birna vekur lesandann til umhugsunar um hið hefðbundna gildismat, sem oft er lagt á fornleifar í fjölmiðlum og meðal fræðimanna, þar sem áherslan er iðulega á að rústir séu þær elstu, stærstu eða óvenjulegustu sem fundist hafi hingað til. Í Mannvistmá segja að hið „venjulega“ sé gert áhuga- vert. Þar er að finna allt litróf íslenskra fornminja og fátt hefur orðið útundan þótt efnið sé mikið. Minjum frá 19. og 20. öld er gert jafnhátt undir höfði og þeim sem eru frá upphafi Íslandsbyggðar. Allar gerðir minja eru merkilegar og mikilvægar og geta á sinn hátt varpað ljósi á fortíðina að mati höfundar. Sérstakur kafli um fornleifar hins nýliðna, ritaður af Þóru Pétursdóttur, kynnir fyrir lesendum einn af nýjustu straumunum í íslenskri fornleifafræði, rannsóknir á 20. aldar minjum. Áhugi á slíkum rannsóknum fer vaxandi hér á landi en fyrir nokkrum árum hefðu þær þótt lítt markverðar. Umfjöllun um minjar frá upphafi 20. aldar, sem er nokkuð umfangsmik- il í Mannvist, er sérstaklega mikilvæg sem stendur. Fyrir Alþingi liggur frum- varp að nýjum menningarminjalögum þar sem fyrirhugað er að breyta ákvæðum um friðun fornleifa. Í núgildandi þjóðminjalögum frá 2001, eru all- ar fornleifar 100 ára og eldri sjálfkrafa friðaðar en í nýju lögunum verður miðað við ártalið 1900. Á forsíðu Mannvistar er mögnuð ljósmynd eftir Mats Wibe Lund af íþróttavelli Íþróttasambandsins Skarphéðins. Völlur þessi var gerður með handverkfærum árið 1911 og var því friðaður samkvæmt 100 ára reglu þjóðminjalaga árið 2011. Ef ný lög um menningarminjar verða sam - þykkt óbreytt munu margar sérstæðar og fallegar minjar um örar breyting- ar á íslensku samfélagi í byrjun 20. aldar verða án verndar. Margar myndir í Mannvist og umfjöllun í texta vekja athygli á minja - stöðum sem eru í hættu vegna ágangs sjávar og annarra náttúrafla. Fornleifafræðingar vinna oft í kapphlaupi við náttúruöflin og tímann og hafa ekki alltaf betur. Skortur á stefnumótun um minjavernd á Íslandi og takmarkaðar fjárveitingar valda því að ómetanlegar minjar hverfa í sjóinn. Verstöðvar og aðrar minjar um sjósókn eru í sérstakri hættu þar sem þær eru yfirleitt rétt ofan við fjöruborðið. Á Siglunesi við Siglufjörð og Gufu - ritdómar 215 Saga vor 2012_Saga haust 2004 - NOTA 10.5.2012 12:40 Page 215
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238
Page 239
Page 240
Page 241
Page 242
Page 243
Page 244

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.