Breiðfirðingur - 01.04.1950, Page 13
breiðfirðingur
11
öld, af því, er ráða má af leiðum þeim, er vér vitum með
vissu að eru frá þeim tíma. Laxdæla segir til, hvar Guðrún
Ósvífursdóttir er grafin. Munnmælin og sögusögn kenna
• leiðið við hana. Gröfin er frá hennar tíma, og virðist
samkvæmt því, er fannst í henni, vera gröf kvenmanns.
Þetta ber allt að sama brunni. — Laxdæla, sögusögn
seinni alda, grafarhleðslan og þáð, sem fannst í gröf-
inni. Hér eru því svo sterkar líkur, sem unnt er að fá, til
þess, að hinn mesti kvenskörungur á söguöldinni, Guðrún
Ósvífursdóttir, sé grafin í þessu leiði.
Ég skal geta þess, að við lögðum allt, sem var í gröf-
inni, í sömu stellingar og stillingar og það var, nema
nokkra muni sem verða sendir Forngripasafni Islands.
Lundúnum 20. okt. 1897.
Jón Stefánsson“
Þetta segir s'kýrslan. — Öll rök hníga að því, að þetta sé leiði
hinnar merku fornkonu, en engin rök eru sögunni andstæð.
Söguleg örnefni hafa yfirleitt geymzt vel út um byggðir lands-
ins. Hvert hérað og margar sveitir eiga merka sögustaði, sem inn-
lendum og útlendum þykir gaman að heimsækja. Mörgum er það
regluleg nautn að heimsækja slíka staði og láta hugann reika um
liðna viðburði sögunnar. Aldrei hefur mér þó fundizt fortjaldi
liðinna tíma lyft eins skýlaust frá, og þegar ég leit yfir bæjarstæðið
að Bólstað sumarið 1931, og undirstöður bæjarhúsanna blöstu
við sýn. Þar var sjón sögu ríkari. ----
Auk hinna sögulegu merku örnefna eru um allt landið hljóm-
fögur og skáldleg örnefni, sem jafnframt fela í sér málandi lýs-
ingu. Vil ég aðeins nefna þessi örnefni á Snæfellsnesi máli mínu
til stuðnings, en þar eru meðal annars örnefnin: Ljósufjöll, Hregg-
nasi og Svörtuloft.. — Slík örnefni eru ógleymanleg og sýna gáfur
og skáldlegt innsæi þeirra, er landið námu og byggðu.
Örnefnin mega ekki gleymast. Landið verður svipminna og
málið snauðara, ef örnefnin glatast. Þetta þarf æskulýður lands-
ins að skilja og meta og læra örnefnin af eldra fólkinu og geyma
þau næstu kynslóð. — Stefán Jónsson