Breiðfirðingur - 01.04.1950, Blaðsíða 116
114
BREIÐFIRÐINGUR
Malarrifi. Fengu ferðafélagarnir þar hinar beztu móttökur. Ferð-
in fyrir sunnan jökulinn var torsótt eins og áður, enda annar bíll-
inn ærið stór, svo að víða varð að ryðja og laga til svo áfram
væri hægt að halda. Var þetta tveggja daga ferð. Vonandi verður
ekki langt þess að bíða að „framan undir“, sem kallað mun vera,
komi greiðfær vegur, enda margra hluta vegna nauðsynlegt,
þótt ekki verði vikið að því hér. Þriðja og síðasta ferðin var
svo farin vestur í Dali, út Skógarströnd til Stykkishólms, og
þaðan aftur suður Kerlingarskarð svo sem leið liggur til Reykja-
víkur. Fararstjóri í ferðunum fyrra árið var Hermann Jónsson
frá Ólafsvík, en síðara árið Óskar Bjartmarz frá Stykkishólmi.
Kvikmyndir tók Jón Halldórsson í þeim flestum, eftir því sem
veður og aðstæður leyfðu.
Fjáröflunarleiðir:
Spjaldhappdrættis var stofnað til fyrra árið. Er það ekki
ennþá að öllu leyti selt. Hlutaveltur hafði félagið tvær síðara
árið. Gáfu þær ágætan árangur. Eru það tvímælalaust beztu
fjáröflunarleiðirnar, sé vel til þeirra stofnað. En þær krefjast
mikillar fórnarlundar og dugnaðar af þeim, er að þeim vinna.
Forustu í annarri þeirra hafði frú Jónína Guðmundsdóttir en
hinnar Þorbjörn Jónsson.
Gjafir berast félaginu ávallt einhverjar á ári liverju. Einn ágæt-
ur félagi færði því t. d. fyrra árið kr. 500,00 í peningum og kr.
500.00 í happdrættisbréfum ríkissjóðs, en þau bréf geta gefið
möguleika til hárra vinninga ef heppnin er með.
Félagar:
Félagið telur nú milli 700—800 félaga. Er það nokkru lægri
tala en áður, sem kemur til af því, að þeir sem ekki hafa innt af
hendi gjöld sín í félaginu um árabil hafa verið strikaðir út af
félagsskránni. Ævifélagar munu vera eitthvað innan við 60.
Bréf:
Erindisbréf, fundarboð og skeyti mun félagið hafa sent frá
sér tólf til þrettán þúsund á tímabilinu.