Breiðfirðingur - 01.04.1950, Qupperneq 67
breiðfirðingur
65
hafði borið. Meðal annars fór hann þá að segja mér, er hann
sá (í sýn), þegar Snæbirni Kristjánssyni hlekktist á og missti af
sér 4 eða 5 menn og komst einn af. Skeði þetta úti undir Jökli, en
þar hugðist Snæbjörn að vera formaður, en sjálfur var Ingimund-
ur heima hjá sér í Flatey, er hann sá sýnina. Um þessa sýn hefur
áður verið skrifað, og fjölyrði ég því ekki frekar um hana hér.
Svo heldur Ingimundur áfram tali sínu og segir þá meðal ann-
ars: „Það á eftir að farast bátur í Svefneyjaskerjum.“ Eg spyr
hann, hvort það yrðu Svefneyingar. Hann kvað nei við og sagði
það ekki verða bát úr Eyjahreppi. Þá kvaðst hann vera hræddur
um, að þeir Inneyingar — og nefndi þá helzt til Skáleyinga —
ættu eftir að fá vont á sjó og sömuleiðis, að eitthvað erfitt lægi
fyrir þeim Látramönnum.
Ræddum við svo áfram um þetta, og segir þá Ingimundur
meðal annars eitthvað á þessa leið: „Og ég skal segja þér meira.
Það eiga eftir að fara fram miklir fólksflutningar héðan úr eyj-
unum. Mest verður það ungt fólk og þó eldra með. Þú munt
sanna þetta, ef þú lifir nokkur ár.“
Ekki þótti mér þá líklegt, að slíkt færi eftir, því að um þessar
mundir stóð búskapur með einna mestum blóma í Breiðafjarð-
areyjum. Allar eyjarnar voru þá fullsetnar, enda fjölmenni með
mesta móti í hreppnum. Kom mér því helzt í hug, að nú væri
eitthvað farið að „slá útí“ fyrir Ingimundi, og lagði lítt upp úr
þessu hjali, þá í bráðina. En langsýni Ingimundar brást ekki, og fór
svo, að ég lifði að sjá þessa sem aðrar spár hans fram koma,
og skal það nú að nokkru rakið. Fyrst er þá að geta, að eigi
alllöngu eftir þetta, fórst póstbáturinn úr Stykkishólmi á leið úr
Flatey til Stykkishólms. Mun hann hafa farið gegnum Svefn-
eyjalönd, því að seinast sást til bátsins úr Flatey suður fyrir
Skarfasker í Svefneyjalöndum. Var hann þá á réttri leið. Leiddu
kunnugir menn getur að því, að hann muni hafa farizt inn af
svokallaðri Mundaflögu, — sellagna-skeri frá Svefneyjum, — þar
sem hann átti að koma við í báðum leiðum í Bjarneyjum. En
í þetta sinn komst hann aldrei til Bjarneyja. Þarn fórst póst-
urinn, Jóhann Jónasson, ásamt Jirem öðrum karlmönnum og
5