Breiðfirðingur - 01.04.1950, Side 56

Breiðfirðingur - 01.04.1950, Side 56
54 BREIÐFIRÐIN GUK í annan tíma hirðstjóri. Var hann í Grundarbardaga með Smið Andréssyni, og þótti veita honum slælega, en þeir hafa eflaust verið frændur, Smiður og hann, og nálega allir Smiðsmenn Skarð- verjar, en Jón langur Kolbeinsson verið kvæntur systur þeirra Andréssona, Smiðs og Bótólfs, fyrr hirðstjóra, Andréssonar. Hef- ur veldi Skarðverja þá verið mest í landinu og eigi öfundlaust, sem fram kom á Grund 1362. Ormur bjó lengi á Skarði, og synir hans voru Guttormur í Þykkvaskógi, veginn 1381, og Guðmund- ur. Arið 1385 gerast þeir uppvöðulsmenn Skarðverjar, sennilega vegna dráps Guttorms, og drepa Þórð Jónsson í Reykholti. Stóðu að því Guðmundur sonur Orms og Eiríkur, er telja má að sé sonur Guðmundar Snorrasonar, er drukknaði 1354. Fylgdi Ormur að þeim málum, en þeir Skarðverjar settu mjög ofan af þeim sökum. Varð Eiríkur að vísu hirðstjóri 1387, en var drepinn árið eftir, og hefur þar endurtekizt saga Smiðs Andréssonar, en eng- inn veit með hverjum hætti eða hvar. Guðmundur sonur Orms hvarf um nótt í Færeyjum hið sama ár og Eiríkur var drepinn. og með undarlegum hætti. Ormur Snorrason lifði fram yfir alda- mót 1400, en þá orðinn örvasa og hafði gefið umboð á fé sínu Ólafi Guðmundssyni bróðursyni sínum. Er nú ekki fyllilega ljóst, hvað um Skarð verður, en á þessum eða næsta tíma virðist Loftur ríki eignast það. Hann er talinn vera sonur Guttorms, sem veginn var 1381, en eldri fræði hafa talið hann son Gutt- orms Ornólfssonar, en það er sennilega Skarðverjaætt, sem að honum stendur, samanber Guttormsnafnið. Líklegt er, að Loft- ur hafi keypt Skarð, og ekki býr hann þar sjálfur, og mun jörð- in hafa verið í ábúð einhvers manns af Skarðverjaætt meðan Loftur ríki átti hana, og hefur svo verið í full 30 ár. Ólöf, dóttir Lofts ríka, erfir jörðina, og hefur sennilega sett þar bú áður en hún gifti.st, haft ráðsmann og friðil, sem í sögum hermir, unz hún giftist Birni syni Þorleifs Arnasonar og Vatnsfjarðar-Kristín- ar. Hefur hún verið svo rík, að ekkert annað gjaforð var henni jafnræði, og hefur gifting hennar og Björns eigi orðið fyrr en um 1440, því Björn mun eigi fæddur fyrr en Björn Einarsson Jórsalafari, afi hans, er andaður, 1415. Björn Þorleifsson var hirð- stjóri Dana á íslandi, og var drepinn í Rifi á Snæfellsnesi í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.