Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Page 5
D r a u g u r G r o u p
TMM 2010 · 2 5
2.
Með Baugsmálinu náðum við loksins Davíð. Yfirgangsmaður í Stjórnar-
ráði, sem lagt hafði niður stofnanir í geðþóttaköstum, látið reka fólk
úr ríkisstofnunum, lokað á ríkisbankafyrirgreiðslu óþægra fjölmiðla,
öskrað á fólk í síma, tekið annan hvern mann á teppið og undirbjó nú
þjóðargjöf til bjórbruggara, náðist allt í einu á mynd. Hann hafði verið
með Baug á heilanum, haft við hann í hótunum, og rak nú sinn langa
arm inn í bókhald og skúffur fyrirtækisins.
Vandinn lá í trausti, eða vantrausti öllu heldur. Með því að tala sig
til óvinar eins af fyrirtækjum Íslands hafði forsætisráðherra fyrirgert
öllu faglegu hlutleysi gagnvart því. Og nú komu mannaráðningar karli í
koll: Þar sem hann hafði sett „sinn mann“ í stól Ríkislögreglustjóra voru
aðgerðir efnahagsbrotadeildar beintengdar við geðþótta ráðherrans.
Misbeiting valds blasti við. Davíð sigaði lögreglu sinni á andstæðinga
sína.
3.
Um þetta skrifaði ég grein („Baugur og Bláa höndin“, Mbl. 13 sept.
2002) og var í kjölfarið kallaður niður í Stjórnarráð. Ég vissi auðvitað
hvað ég átti þar í vændum en forvitnin er frumhvöt rithöfundarins sem
stóðst ekki mátið að fá að sjá inn í kjarnhol valdsins. Fyrir dyrum stóðu
ritarinn og aðstoðarmaðurinn brúnaþung á svip og vísuðu mér leið inn
til ráðherrans.
„Er það þetta teppi hér?“ spurði gesturinn og benti á myndarlega
mottu sem stóð undir sófasetti næst dyrum. Húmoristinn frægi hló ekki,
heldur bauðst til að sýna slotið. Í fjærenda skrifstofunnar stóð skrifborð
með síma en engri tölvu en í afherbergi annað borð með hvítum tölvu-
hnullungi. „Hér hef ég næði til að skrifa og sinna ýmsum málum.“ Bauð
svo aftur fram, í sófasettið. Það var þá semsagt þetta teppi.
Síðan hófst málsvörn stjórnmálamanns sem hugsar allt í persónum
en fátt í pólitík. Ég var mættur í hjarta smáríkisins.
„Það er auðvitað af og frá að ég hafi sent lögregluna á eftir þessum
mönnum. Af og frá. Fyrir það fyrsta er Tryggvi Jónsson (þáverandi for-
stjóri Baugs) heimilisvinur dómsmálaráðherra (Sólveigar Pétursdóttur)
þannig að þú sérð það að ég færi auðvitað aldrei að beita mér gegn fyrir-
tæki hans …“
Vinir vina minna eru mínir vinir. Það þurfti ekki sterk sjóngler til
að sjá í gegnum vörnina. Sá sem lýgur leitar vars í samskonar rökum og