Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Qupperneq 27
Í s l a n d , a n n o n ú l l
TMM 2010 · 2 27
vegna bankahrunsins sérstaklega“, en menn geta velt fyrir sér merkingu
þeirra orða. Þótt Hannes telji að engum eigi að vægja „sérstaklega“ og að
í skýrslunni eigi að felast „hreinskilið og heiðarlegt uppgjör“ segir hann
að ekki megi gleyma því að „enginn íslenskur ráðamaður ætlaði sér
áreiðanlega að fremja neinn glæp. Enginn vildi þetta bankahrun. Það
var engum íslenskum ráðamanni – eða auðjöfri – í hag.“16
Í enn öðrum pistli varpar Hannes Hólmsteinn einnig fram þeirri
spurningu hvort andúð skýrsluhöfunda á frjálshyggju geti hugsanlega
brenglað niðurstöðurnar,17 en þar á hann fyrst og fremst við vinnu Vil-
hjálms Árnasonar, Salvarar Nordal og Kristínar Ástgeirsdóttur, höfunda
8. bindis rannsóknarskýrslunnar, Siðferði og starfshættir í tengslum við
fall íslensku bankanna 2008. Þegar Hannes fékk loksins skýrsluna í
hendur lýsti hann því yfir að honum þættu „athugasemdir nefndarinnar
við embættisfærslur Davíðs smávægilegar“ og kvaðst ekki koma „auga á
neitt sem yrði til þess að við þyrftum að gráta okkur í svefn eins og einn
nefndarmaðurinn kvaðst þurfa að gera“.18
Ómar Ragnarsson var ekki sá eini sem vildi skoða skýrsluna sem
merkan viðburð í Íslandssögunni. Sjálfstæðismaðurinn Guðbjörn Guð-
björnsson ræðir hana í ljósi ýmissa sögulegra hörmunga sem síðari kyn-
slóðir hafa þurft að gera upp og tekur sem dæmi frönsku stjórnarbylt-
inguna, útrýmingu Bandaríkjamanna á indjánum, fjöldamorð Tyrkja á
Armenum, og morðin á gyðingum í heimsstyjöldinni síðari. Svo segir
Guðbjörn:
Þótt glæpir okkar Íslendinga blikni í samanburði við þá hræðilegu atburði, sem ég
með fátæklegum orðum reyni að lýsa hér á undan, verðum við að spyrja okkur,
hvernig við munum taka á fortíðinni í framtíðinni. Munum við reyna að velta
öllum steinum við og draga þá til ábyrgðar, sem eitthvað hafa til saka unnið?
Munum við reyna að halda á lofti þessum atburðum, sem víti til varnaðar fyrir
framtíðarkynslóðir Íslendinga. Síðast en ekki síst, munum við getað fyrirgefið
öllum þeim, sem eitthvað hafa til saka unnið og getum við boðið þá velkomna
aftur í samfélag okkar? Fyrirgefningin ein tryggir hugarró og vellíðan fyrir fórn-
arlömb og gerendur. Við verðum síðan að vona að einhverjir þeirra, sem frömdu
þessi efnahagslegu hryðjuverk á undanförnum árum, iðrist gjörða sinna og vilji
bæta ráð sitt og hjálpa okkur við að byggja upp betra samfélag.19
Ekki voru allir jafn vissir um að skýrslan ætti eftir að marka spor í sögu
þjóðarinnar. Sumir voru á þeirri skoðun að hún myndi engu breyta, ekki
fremur en kosningarnar, brotthvarf Davíðs úr Seðlabankanum, afskipti
Evu Joly af bankahruninu, þjóðaratkvæðagreiðsla vegna Icesave, eða
allir fundirnir á Austurvelli.20
Í pistli sem Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri Grænna, skrifaði