Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Page 35
Í s l a n d , a n n o n ú l l
TMM 2010 · 2 35
vandræðum vegna aðkomu sinnar að vafasömum viðskiptavafningum
og ótrúlegri skuldsetningu, með ólöglegum arðgreiðslum35 og með því
að þiggja himinháa styrki frá fyrirtækjum.36 Þeir hafa einnig komið
beint að málefnum bankanna með því að sitja í sjóðum þeirra og ráðum.
Síðast en ekki síst ber Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins og varaformaður bankaráðs Landsbankans
höfuðábyrgð á Icesave ásamt bankastjórunum tveimur og Björgólfi
Guðmundssyni, formanni bankaráðs, á meðan einn af varaþing-
mönnum flokksins vann við það í markaðsdeild Landsbankans að afla
Icesave-reikningunum brautargengis í útlöndum.37
Í fljótu bragði mætti ætla að almenningur felldi þunga dóma um
slíkt framferði flokksmanna. Raunin var þó sú að á vordögum 2010 var
flokkurinn aftur orðinn stærsti flokkur landsins í skoðanakönnunum
og sveiflaðist fylgi hans frá 35% upp í yfir 40% fylgi.38 Á þeim tíma sem
fylgið var komið yfir 40% hafði enginn af þingmönnum flokksins tekið
sér tímabundið leyfi frá þingstörfum, eins og Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir og Illugi Gunnarsson áttu eftir að gera í apríl 2010, svo að
fylgisaukningin tengdist ekki uppgjöri á hruninu með neinum hætti.39
Slíkan almennan stuðning er erfitt að skýra sem andvaraleysi eða góð-
ærismeðvirkni þegar komið er rúmlega eitt og hálft ár inn í kreppu og
hlýtur að vekja upp spurningar um hvort bein ábyrgð almennings í
hruninu og aðdraganda þess sé meiri en skýrslan gefur til kynna. Kjós-
endur telja það að minnsta kosti ekki neina frágangssök þótt stjórn-
málamennirnir hafi tekið beinan þátt í því hegðunarmynstri sem svo
mjög er gagnrýnt í rannsóknarskýrslunni.40
3) Var íslenska efnahagshrunið af hinu góða? Ég heyrði spurninguna
fyrst á málefnafundi á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands vorið
2009. Vilhjálmur Árnason heimspekingur stýrði fundinum, en frum-
mælendur voru Bryndís Hlöðversdóttir forseti lagadeildar Háskólans á
Bifröst, Sigurður Árni Þórðarson prestur í Neskirkju og Árni Bergmann
rithöfundur, háskólakennari og fyrrverandi ritstjóri.41 Allir fyrirlesar-
arnir svöruðu spurningunni neitandi, enda erfitt að sjá nokkuð jákvætt
við það hörmungarástand sem bankakreppan hefur leitt yfir þjóðina.
Spurningin sat þó í mér vegna þess að henni mátti svara játandi að
gefnum ákveðnum forsendum. Íslenska efnahagshrunið er varla af hinu
góða í þeim skilningi að í því felist náðarfall í líkingu við það sem greina
má í kristinni hugmyndafræði, þar sem siðferðileg þekking sprettur úr
mikilli raun og lyftir að lokum þeim hrjáðu upp á hærra andlegt plan.