Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Blaðsíða 48
Ú l f h i l d u r D a g s d ó t t i r
48 TMM 2010 · 2
usta annarrar konunnar sem hann síðar gerir næstum að brúði sinni.
Tengsl vampýrunnar við samkynhneigð eða tvíkynhneigð hófust í
raun strax í rómantískum skáldskap og voru áberandi í sögu Polidori,
sem fjallar um vináttu ungs saklauss manns og annars sem er eldri og
reyndari – og vampýra.
Nokkrum árum fyrir útkomu Drakúla skrifaði annar Íri, Sheridan
Le Fanu, vampýrusmásöguna „Carmilla“ (1872), sem fjallaði aðallega
um lesbisma.17 Hinsegin erótík er undirliggjandi í sögum Anne Rice
og olli ýmsum komplexum í tengslum við kvikmyndina – en segja má
að meðan nokkuð áberandi samkynhneigð Viðtalsins hafi verið falin
þónokkuð í kvikmyndinni, þá voru faldir tónar samkynhneigðar ýktir
í Drakúla-myndinni.18
Kvikmyndin var fljót að tileinka sér vampýruna. Saga Stokers kemur
út á sama tíma og kvikmyndin er að verða til og tengsl vampýrunnar
við leikhús gerði það að verkum að Drakúla fór fljótlega á svið og þaðan
inn í kvikmyndina.19 Fyrsta vampýrukvikmyndin sem vitað er um var
hin þýska Nosferatu frá árinu 1921, gerð af leikstjóranum F.W. Murnau.
Áratug síðar birtist fyrsta bandaríska útgáfan, Dracula, byggð á leikgerð
skáldsögunnar, í leikstjórn Tod Browning. Báðar þessar útgáfur hafa
haft gífurlega þýðingu fyrir síðari nálgun á vampýruna, í Nosferatu var
meiri áhersla lögð á vampýruna sem skrýmsli, auk þess sem táknrænar
hliðar hennar (svo sem ofsóknir gegn þeim sem eru öðruvísi) voru einnig
undirstrikaðar. Í Dracula birtist vampýran í líki glæsilegs og dularfulls
aðalsmanns, sem er bæði heillandi og hættulegur (og heillandi af því
hann er hættulegur), en líka dálítið harmrænn og einmana, eins og fyrr-
nefnd athugasemd lýsir: „Að deyja, að vera raunverulega dauður, það
hlýtur að vera dásamlegt.“ Fyrir marga mörkuðu þessi orð upphafið á
samúð með vampýrunni.20
Hin góðu, hin illu og hin glæstu
Hin harmræna vampýra sem Anne Rice gerði fræga náði líklegast
hámarki sínu með Angel, sáluðu vampýrunni úr sjónvarpsþáttunum um
vampýrubanann Buffy. Angel er ekki andsetinn eins og aðrar vampýrur
þáttanna, heldur var lögð á hann sú bölvun að hann fengi sál sína aftur –
með tilheyrandi samviskubiti yfir illgjörðum undanfarinna alda. Hann
reynir því hvað hann getur til að bæta fyrir brot sín og aðstoðar Buffy
við bardaga gegn vampýrum (og hinum og öðrum óvættum). Þau verða
ástfangin, en bölvunin neitar honum um að njóta fullkominnar ástar