Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Blaðsíða 63
H r y l l i n g u r ! H r y l l i n g u r ? Va m p ý r a n g e n g u r l a u s
TMM 2010 · 2 63
36 Ritstjóri bendir réttilega á að hér geti einnig verið að finna eina skýringuna á því hversvegna
vampýran njóti svo mikilla vinsælda meðal unglinga, en unglingar eru einmitt dýrategund sem
gerir mjög útá að þrýsta á og kanna ýmsar markalínur.
37 Af nýrri myndum má nefna The Hunger og Nadja (1994) í leikstjórn Michael Almereyda.
38 Eins og áður hefur komið fram, hér neðanmáls, er til heilmikið af hinseginfræðaskrifum um
vampýruna. Það væri of f lókið mál að ætla að draga fram dæmi um hinsegin vampýrur (flestar
nútímavampýrur eru dáldið hinsegin), auk þess sem sú umræða er ansi f lókin. Þetta kemur
meðal annars til af því að lengi vel voru það helst kvenvampýrurnar sem voru hinsegin (það
að láta konur borða karla, og/eða sýna körlum virkan kynferðislegan áhuga, var bara of erfitt
lengst af), og birtust þá í myndum sem lögðu helst áherslu á að sviðsetja erótíska leiki tveggja
kvenna, körlum til ánægju.
39 Eins og frægt er orðið skrifaði Rice Viðtalið eftir að dóttir hennar lést úr hvítblæði. Persóna
Claudiu, sem er bjargað frá öruggum dauða til að öðlast eilíft líf, en deyr samt, er byggð á þess-
ari reynslu.
40 Hér er Lindqvist líklegast að vísa til frægs barnaníðings og morðingja, sem oft er talinn meðal
sögulegra vampýra, en það er enginn annar en besti vinur Jóhönnu af Örk, Gilles De Rais. Eftir
að hafa barist við hlið Jóhönnu dró hann sig í hlé og lagði stund á yfirskilvitleg fræði, samhliða
því að hann myrti börn í hópum eftir að hafa misnotað þau.
41 Ég fjalla í lengra máli um kvikmynd Alfredson í grein um heimshrollvekjur sem birtast mun í
Ritinu á þessu ári.
42 Vissulega eru fleiri karlar, eins og Darren Shan sem skrifaði unglingavampýrubókaseríuna
Cirque Du Freak, en líka fleiri konur eins og J.L. Smith (Vampire Diaries), Melissa de La Cruz
(Blue Bloods). Þessar seríur eru ætlaðar ungu fólki, en af fullorðinsvampýrusagnahöfundum
má nefna Tanyu Huff, Kim Harrison og Jeaniene Frost. Enn á ný vil ég þakka Dagbjörtu
Kjartansdóttur í Nexus fyrir að láta mér í té lista yfir vinsælt vampýruefni.