Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Blaðsíða 82
M a r g r é t Tr y g g va d ó t t i r
82 TMM 2010 · 2
„Ég vissi það, ég fokkings vissi það, hann er geðveikur, hann barði hana geðveikt
og hann stakk hana, og hann kastaði Dóru í vegginn og dró hana á hárinu eftir
ganginum, ég vissi það, ég vissi það og ég vissi að það væri best að hátta sig ekki
neitt.“3
Sápukúlur sakleysisins springa svo endanlega þegar þær mæðgurnar
snúa heim af spítalanum daginn eftir og fjölskyldan handan götunnar
heldur áfram lífi sínu eins og ekkert hafi í skorist. Þessir atburðir verða
til þess að strákarnir hella niður bæði bjór og bríser og setja öll áform
um fyrsta fylliríið á hilluna enn um sinn.
Mér þykir heilmikið til þessarar fyrstu bókar Guðmundar koma og
vona að hann haldi áfram að skrifa fyrir þennan aldurshóp. Þótt bókin
sé hefðbundin og í henni sé að finna helstu klisjur unglingabókanna, svo
sem fyrstu ástina, vináttu, íþróttir og fleira í þeim dúr er þetta feykivel
gert, aldrei dauður punktur og bókin er bæði læsileg og aðgengileg sem
skiptir heilmiklu máli þegar unglingar lesa sífellt minna.
Hjartsláttur eftir Ragnheiði Gestsdóttur
Sú bók sem ég batt mestar vonir við er bókin Hjartsláttur eftir Ragnheiði
Gestsdóttur, margverðlaunaðan og vinsælan barna- og unglingabóka-
höfund. Af kynningu og kápu má ætla að hér sé um að ræða ástarsögu
úr búsáhaldabyltingunni. Sagan segir frá 10. bekkingunum Tristan og
Írisi Sól. Riddarasagan um Tristan og Ísól, sem var ekki skapað nema
skilja, er undirliggjandi og vísanir í hana víða. Tristan er nýr í bekknum,
framandi og spennandi strákur sem vekur athygli hvar sem hann
kemur. Sjálfsagt er það smekksatriði en mér finnast sögupersónurnar
sjálfar fullmeðvitaðar um vísanirnar, lesa t.d. sjálfar Tristanskvæði og
fjalla um líkindin. Tristan gefur svo Írisi Sól bókina í jólagjöf. Of lítið er
skilið eftir, lesendum til túlkunar og uppgötvunar.
Líkt og í gömlu sögunni er ást þeirra Tristans og Írisar ákaflega heit.
Þau kjósa að leyna henni, bæði fyrir foreldrum og bekkjarfélögum sínum.
Efnahagsástandið er örlagavaldur í sögunni á þann veg að mamma
Tristans nær ekki endum saman, lánin á nýju íbúðinni hafa rokið upp
og þegar henni býðst staða við háskóla í Kanada sér hún þann kost
vænstan að þau mæðginin flytjist þangað svo hún missi ekki aleiguna.
Þjóðfélagsástandið virðist þó ekki koma sérstaklega við skötuhjúin að
öðru leyti. Einn bekkjarfélagi, vinur Tristans, sækir mótmælin og þau
skynja að fullorðna fólkið er upptekið af ástandinu, les blöðin af miklum
móð og horfir á Silfur Egils. Tristan og Íris Sól eru uppteknari við aðra
hluti, kakódrykkju, snúðaát en þó aðallega hvort af öðru.