Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Side 84
M a r g r é t Tr y g g va d ó t t i r
84 TMM 2010 · 2
Fleiri hliðum á fjölmenningarsamfélaginu er velt upp en hin félagslynda
Katla, systir Þórhalls, eignast góðar vinkonur frá Pakistan og Írak og
lesendur fá bæði innsýn í líf þeirra í Noregi og upprunalandinu, auk
þess sem fleiri nemendur eiga rætur að rekja til ólíkra heimshluta. Það
er verulega snjallt að setja íslenska strákinn í hlutverk nýbúans sem er að
fóta sig á nýjum stað, kann ekki tungumálið og er öryggislaus og sagan
vekur unga lesendur eflaust til umhugsunar.
Í Þrándheimi eru fornminjar um víkinga á hverju strái og Þórhallur
er spenntur fyrir þeim, einkum Ólafi Tryggvasyni en rétt við nýja heim-
ilið hans er stór höggmynd af honum. Í einsemd sinni leitar Þórhallur í
Heimskringlu Snorra Sturlusonar og þar sem enginn getur sagt nafnið
hans kallar hann sig Snorra. Þegar líður á veturinn eignast hann þó
góðan vin, hann Erlend, sem einnig er á kafi í fornsögum og líta þeir
félagar mikið upp til fornkappanna og vilja líkjast þeim. En eftir því
sem þeir setja sig betur inn í sögurnar og hugsa meira um þær ofbýður
þeim ofbeldið og sjá að það sem þeir álitu áður hetjuskap er í raun
ruddaskapur.
Þessi þroskasaga Þórhalls er allt í senn, vel skrifuð, fróðleg og nokkuð
spennandi. Hún fjallar um mannúð og umburðarlyndi á hátt sem
ungir lesendur eiga auðvelt með að skilja. Mér hefði þótt gaman að hafa
einfaldað kort af Þrándheimi, t.d. á saurblöðum sem hefðu sýnt helstu
minjar og staðsetningar sem koma við sögu og veit að Halla Sólveig
Þorgeirsdóttir sem myndlýsir söguna hefði einnig leyst það verkefni
prýðilega. Myndir hennar á kápu og í bókinni er skemmtilegar og hefðu
mátt vera fleiri en bókin er sögð fyrir 10 ára og eldri.
Bókasafn ömmu Huldar eftir Þórarinn Leifsson
Bókasafn ömmu Huldar er reyndar ekki samtímasaga heldur fram-
tíðarfantasía, sprottin úr samtíma okkar og sker sig að því leyti frá
hinum bókunum. Þar segir frá Albertínu sem býr í heimi þar sem
Gullbankinn ógurlegi ræður öllu og hefur hneppt íbúana í þrældóm
skuldaklafa. Aðgangi að þekkingu er stýrt, bækur eru bannaðar en
auglýsingar dynja á fólkinu alls staðar. Óöld ríkir í nýja skólanum sem
Albertína gengur í en það versta er að fólk á það til að hverfa en samt
láta allir eins og ekkert sé.
Í upphafi sögunnar er bróðir Albertínu horfinn en henni sagt að hann
hafi bara flutt í burtu og ekki viljað vekja hana áður en hann fór en því
trúir hún tæpast. Albertína er líka að byrja í nýjum skóla því þau sem
eru eftir í fjölskyldunni eru flutt í nýja lúxusblokk, þótt þau séu ekki rík.