Tímarit Máls og menningar - 01.06.2010, Síða 105
U m Ö s k u b u s k u
TMM 2010 · 2 105
kerfi en það kristna, sem upp kom hjá þjóðum af Kákasuskyni, sem
geymdu glæður af úrfornu jafnrétti. Fyrirbærið kallast kvenréttindi.
Franska byltingin gleymdi konum og var lengi að breiðast út um hinn
vestræna heim, en setti þó frelsisljómann af stað. Siðgæðismeirihluti
Vesturlanda hefur á síðustu öld lagt undir sig heim með furðublöndu
af kristni og eiginkvennaréttindum um heim allan. Meira að segja for-
sætisráðherra Japans – í heimalandi geishanna – varð að segja af sér
vegna framhjáhalds fyrir árum síðan. Clinton mátti ekkert. Meira að
segja kvæntir menn undir mesta álagi í heimi mega ekki halla sér að
neinu nema gömlu kerlingartuskunni. Svona hafa eiginkvenréttindin
breytt heimsmyndinni. Sem betur fer enda ævintýri á lyginni happily
ever after … gleðileikurinn endar efst á hjóli lukkunnar. Hjónabands-
hjólið rúllar síðan vítt og breitt um hraun sem mosaþembur.
Stjúpsysturnar ljótu
Hvað með þá vídd í Öskubuskusögunni að draga upp svona and-
styggilega mynd af stjúpunni og gera stjúpsysturnar svo ljótar? Víðar
í dýraríkinu er annað blóð en eigið kalt, þótt til séu dæmi um að
risaskjaldbaka taki að sér munaðarlausan flóðhestskálf eða köttur
andarunga. Ég náði því alveg sem barn að stjúpi og stjúpa gætu verið
góð, hægt er að læra að þykja vænt um annars blóð, vináttan getur orðið
djúp, sönn og vellandi góð. Margar heyrast þó sögurnar um hve erfitt
sé að tengja annars börn við nýjan maka og öfugt. Öskubuskusagan
fer lengra en að gera stjúpsysturnar vondar. Þær voru ekki bara ljótar
af því þær voru vondar, þær voru alvöruljótar sem tákngerðist í því að
þær voru ei með nettan fót. Því læra allar telpur litlar hve illt sé að vera
ei fótnett, hér er enginn skilningur né viska á ferð, bara hrá dýrska og
harka. Barbiedúkkufóturinn kom svo til að viðhalda óhamingju kvenna,
í heimi sem skorti angur í allsnægtum.
Í hatrinu ungmeyja á milli speglast raunveruleikinn. Hryllileg sam-
keppni kvenheims speglast í Öskubuskuminninu. Allt of fáir lausir
karlsjensar með völd og sexappíl ku vera á vappi, það gerir einverið/
einkvænið og féð á fárra hendi … því níða konur á flestum aldri
hver aðra grimmilega niður. Ljótar konur fá enda hrikaleg skilaboð í
ævintýrum og ekki hefur ástandið batnað með anorexíuauglýsinga-
tískufári þenslunnar endalausu. Karlar óttast samkvæmt auglýsing-
unum alla rassa nema afar netta og rýra. Æ fleiri konur ala auma ímynd
sér við brjóst.
Sagan af Öskubusku kennir að hatur kvenna á fallegu telpunni sé