Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 48

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 48
Þ o r s t e i n n Þ o r s t e i n s s o n 48 TMM 2015 · 1 hans dómi miklu máli til skilnings ljóða. Eliot hafði að því leyti sérstöðu í sinni gagnrýni að hún ein kenndist af heimspekilegri skólun hans og kröfu til skálda og gagnrýnenda um yfir sýn yfir heil menningarsvæði, raunar alla bókmenntasögu Evrópu frá dögum Hómers, eins og fram kemur í ritgerð hans „Hefðin og hæfileiki ein stak lingsins“ sem Matthías Viðar Sæmundsson þýddi á íslensku.4 3 Nýrýnin varð fljótlega ríkjandi skólastefna í Bandaríkjunum og úrættaðist þegar á leið sem undirbúningur undir staðlaðar prófspurningar. Það er eflaust ein helsta orsök þess hraklega orðspors sem hún hefur fengið. Mikil áhersla var lögð á ýmis tæknileg atriði ljóða í kennslunni, atriði eins og myndhvörf, sam líkingu, tákn, tvíræðni, tón, þversögn osfrv., atriði sem vissulega er gagn legt að kunna nokkur skil á en hafa ekki sjálfgildi og eru ekki aðal skáldskapar þótt auðvelt sé að prófa úr þeim. Annars merkir heitið close reading í sjálfu sér bara náinn eða vandaður lestur þeirra verka sem verið er að kanna, og getur verið af margvíslegu tagi, enda jafnvel verið haft um lestur afbyggjenda þótt hæpið sé um suma þeirra að dómi þess sem þetta ritar. Ég leyfi mér í því sambandi að nefna J. Hillis Miller sem gjarna les ljóð á þann veg að því er líkast sem þau komi úr tætara eftir lesturinn. En fráleitt er að setja alla afbyggj endur undir einn hatt, og ég vil þar einkum undanskilja Barböru Johnson sem byrjar eina grein sína svo: „Að kenna bókmenntir er að kenna fólki að lesa, að veita athygli í texta ýmsu því sem hraðlestrar- menning okkar hefur tamið sér að sneiða hjá, virða að vettugi, hlaupa yfir, telja til aukaatriða. Að lesa það sem fram fer í tungu málinu, ekki að geta sér til um hvað vakað hafi fyrir höfundi […]. Þetta er eina kennsla sem hægt er með sanni að kalla bókmenntalega; allt annað er hug myndasaga, ævisaga, sálfræði, siðfræði eða léleg heimspeki.“ Hún bætir því síðan við að því fari fjarri að í þessum orðum hennar felist að ekkert skuli lesa utan textans sjálfs, rétt eins og hann sé án snertingar við allt sem utan hans stendur. „Innan mál“ textans er ekki sjálfgefið og „utan málið“ ekki heldur, og „oft fær lesand inn ekki nálgast textann án fílólógískra, sögulegra, ævisögulegra og ann arra rann sókna.“ En þau atriði séu ekki endi lega auðtúlkaðri en bók- mennta textinn sjálfur. „Þjálfun í lestri hlýtur að vera þjálfun í að meta gildi og áreiðan leika ytri sem innri heim ilda.“5 Robert Scholes [frb. skóls] heitir bandarískur skólamaður sem vill kenna lestur bókmennta sem nokkurskonar handverk (e. craft). Honum er uppsigað við stranga skiptingu bókmennta í fínar og ófínar sem hann telur að hafi verið fylgifiskur módernisma og nýrýni í Bandaríkjunum. Hann rekur í bók sinni The Crafty Reader ýmis skemmti leg dæmi þess hvernig nemendur sem aldir voru upp á nýrýni notuðu internetið til próf undir búnings.6 Tvö dæmi (lauslega þýdd):
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.