Hugur - 01.01.2014, Side 114

Hugur - 01.01.2014, Side 114
114 Henry Alexander Henrysson Siðfræðikenningar Ekki er ávallt augljóst hvaða leið sé líklegust til árangurs þegar kemur að því að skera úr um siðferðileg álitamál. Sú sem flestir grípa til er að nýta sér kenningar sem lýsa innviðum siðferðisins, eins og stundum er talað um, á ákveðinn hátt og nota þær síðan til að svara spurningum á borð við hvað sé leyfilegt og hvað bann- að, og hvers samfélagið getur (og við sjálf getum) krafist af okkur. Slíkar kenn- ingar nefnast normatívar siðfræðikenningar. Aðrar leiðir sem eiga að varpa ljósi á – og stundum draga fram – siðferðileg álitamál eru til dæmis þær að máta þau við skráðar eða óskráðar siðareglur í samfélaginu. Slíkar reglur geta hvort sem er tengst smærri atriðum í starfi og afþreyingu eða snúið að víðtækum meginreglum eins og skaðleysi, réttlæti, sjálfræði og ábyrgð gagnvart umhverfinu.2 Einnig er mögulegt að nýta sér dæmisögur eða minni úr bókmenntaverkum til að skerpa sýn á siðferðileg álitamál. Dæmið hér að framan um rjúpurnar og hvort viðeig- andi sé að njóta einhvers og láta aðra úr fjölskyldunni ávallt sjá um fyrirhöfnina sækir til dæmis augljóslega innblástur til sögunnar af litlu gulu hænunni. Siðfræðikenningar eru þó sá efniviður sem getur reynst hvað drýgstur við að takmarka óvissu, tryggja samkvæmni í skoðunum og forðast mótsagnakenndan málflutning. Þær bjóða upp á svör við erfiðum spurningum eins og hvað okkur beri að gera í vissum aðstæðum. Þær segja okkur með öðrum orðum eitthvað um hvað er leyfilegt og hvað ætti að láta ógert. Nytjastefna er líklega sú kenning sem hefur verið mest áberandi í heimspekilegri greiningu á samskiptum manna og náttúru á síðustu áratugum.3 Grundvallaratriði hennar – að forsendur siðadóma velti fyrst og fremst á því hvort athafnir leiði til svo mikils sársauka og óþæginda fyrir þær lífverur sem geta fundið til að sú ánægja sem fylgir athöfninni vegi þar ekki upp á móti – hefur verið notað til að skoða flestar hliðar á umhverfismálum. Siðfræðingar sem hafa beitt nytjastefnu til að skoða vernd og réttindi dýra hafa náð miklum árangri í að móta, skýra og leiða umræðuna. Spurningarnar sem fylgja henni um hvaða dýr finni í raun og veru til á sama hátt og maðurinn og hvort athafnir hans geti ekki verið réttmætar eða ámælisverðar óháð afleiðingum þeirra hafa hins vegar ávallt fylgt henni og verið tilefni harðra skoðanaskipta.4 Annars konar fræðileg nálgun á samskipti manns og náttúru er sú að horfa á hverja lífveru, og jafnvel vistkerfi, sem ákveðna heild sem hefur til að bera það endum í málstofunni þakka ég góðar spurningar og ritrýni Hugar mjög viðeigandi athugasemdir. Tilefni greinarinnar er meðal annars rannsókn sem ég vinn að um siðferðileg álitamál varðandi nytjar á sjávarspendýrum. 2 Vilhjálmur Árnason o.fl. (2005) ræða siðferðileg álitamál við fiskveiðar og stjórnun þeirra í ljósi slíkra meginreglna (velferðar, frelsis og réttlætis). Í grein sinni „Lífpólitík í lýðræðissamfélagi“ (Vilhjálmur Árnason 2011) varar Vilhjálmur við því að siðfræðingar horfi eingöngu til þröngra siðfræðilegra viðmiðana „án þess að leiða hugann að því hvaða afleiðingar það kunni að hafa í víðara samhengi“ (184). 3 Bók Peters Singer Animal Liberation (1975) er án nokkurs vafa það verk sem mestu hefur ráðið um hvernig nytjastefnu er beitt í umhverfissiðfræði. Í verkinu færir hann rök fyrir því að hagsmunir dýra skipti máli í siðferðilegum skilningi þar sem ekkert bendi til annars en að þau geti fundið til sársauka og liðið þjáningar. 4 Helsta ágreiningsatriðið er hvort dýr njóti einhvers konar réttinda, svipaðra mannréttindum, eða hvort réttindahugtakinu (sem nytjastefna þarf ekki á að halda) sé ofaukið í þessari umræðu. Um réttindi dýra sjá Regan 1983. Hugur 2014-5.indd 114 19/01/2015 15:09:35
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239
Side 240
Side 241
Side 242
Side 243
Side 244
Side 245
Side 246
Side 247
Side 248
Side 249
Side 250
Side 251
Side 252
Side 253
Side 254
Side 255
Side 256
Side 257
Side 258
Side 259
Side 260
Side 261
Side 262
Side 263
Side 264
Side 265
Side 266
Side 267
Side 268

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.