Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1975, Blaðsíða 186
181
Ýsa.
Árabilið 1970—1973 hefur heildarýsuaflinn á íslandsmiðum numið
að meðaltali tæpum 44 000 lestum á ári. Á þessu timabili komst
aflinn lægst í 39 000 lestir árið 1972 og hafði þá ekki orðið eins lítill
síðan árið 1946. Aðalorsök þessarar aflarýrnunar má rekja til lélegs
klaks nær óslitið i meira en áratug. Síðan árið 1958 hefur klak aðeins
heppnast allþoklcalega árin 1960, 1964 og 1970. Þegar árið 1973 fór
áhrifa 1970 árgangsins að gæta í veiðinni og' jókst aflinn það ár um
6 000 tonn miðað við árið á undan. Á yfirstandandi ári er gert ráð
fyrir frekari aukningu ýsuaflans, þó ekki ýkja mikilli, þar sem
1970 árgangurinn virðist ekki ætla að koma eins mikið fram i veið-
inni, eins og haldið var i fyrstu. Má vera að eitthvað kunni árgang-
urinn að hafa verið ofmetinn, en hinu má ekki gleyma, að talsvert
var drepið af honum sem 1 og 2 ára gömlum undirmálsfiski, en
ekki eru til neinar tölur yfir það.
Árgangarnir frá 1971 og 1973 eru sæmilegir, en árgangarnir frá
1972 og 1974 eru með þeim lélegri. Það verður því ekki um neina
verulega breytingu á ýsuaflanum að ræða í náinni framtíð. Með nú-
verandi sókn er gert ráð fyrir að heildarýsuaflinn árið 1975 verði
um 46 000 tonn. íslendingar veiða nú orðið bróðurpartinn af ýsunni.
Árið 1973 veiddum við 34 000 tonn eða 76% heildaraflans. Ef við
veiðum 80% heildaraflans 1975 mun afli okkar verða 37 000 tonn.
Ufsi.
Öfugt við þorsk og ýsu hefur ufsaaflinn verið með allra mesta móti
undanfarin ár. Fer þar saman vænir árgangar og aukin sókn. Þá
hefur hlutur íslendinga i heildaraflanum farið sífellt vaxandi. Ufs-
inn er flökkufiskur, sem á það til að ráfa milli fjarlægra hafsvæða.
Fiskifræðingar eru þess vegna ekki á eitt sáttir, hvort líta beri á
ufsann í NA.-Atlantshafi sem einn stofn með mörg hrygningarsvæði,
eða fleiri, meira og minna sjálfstæða stofna. Rannsóknir á ufsastofn-
inum hér við land benda eindregið til þess að stofninn sé nú skynsam-
lega nýttur. Þar sem stofnstærð ufsans kann að breytast vegna gangna
til og frá landinu geta aflahorfurnar breyst til beggja vona. Við
óbreytt ástand stofnsins má reikna með að ufsaafli íslendinga næsta
ár verði einhvers staðar á bilinu 60—70 þús. smálestir.
Hjálmar Vilhjálmsson:
Loðnuaflinn 1975.
Þetta er i 3. sinn, sem reynt er að segja fyrir um stærð loðnu-
gangna á vetrarvertíð og rneta aflahorfur lcomandi vertíðar. Ef