Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Page 95
93
Ólafsvíkur. í kauptúnunum er fiskur aðalfæða manna allt árið um
kring.
Flateyjar. Viðurværi yfirleitt gott.
Hóls. Mjög margir nota erlendan nærfatnað og sokka, einkum unga
fólkið. Fæði er óbrotið en sæmilega holt, aðallega fisk- og kjötmeti,
mjólk er minna notuð en skyldi, — Þykir dýr (kr. 0,44 1.); margir
eiga þó geitur og bætir það nokkuð úr mjólkurskortinum. Kaffi er
mikið drukkið.
Hesteyrar. Viðurværi víðast viðunandi. Harðfiskát fer því miður
injög minnkandi, en innflutningur á kornmat eykst. Flest heimili
vinna sjálf úr ull sinni (nærfatnað, sokka, vetl. o. f 1.), en notkun er-
lends fatnaðar færist mjög í vöxt, sérstaklega meðal kvenfólksins.
Skófatnaði er mjög ábótavant, notaðir jöfnum höndum íslenzkir skór
og gúmmískór.
Hofsós. Viðurværi almennings er hér gott, því að gott er til mat-
fanga, bæði til sjós og lands.
Höfðahvcrfis. Héraðsbúar semja sig meira og meira eftir kaupstað-
arklæðaburði. Þó voru öll skólabörn í ísl. ullarnærfötum. Á heimilun-
um er varla tími til að vinna ísl. ull, og fullorðið fólk gengur talsvert í
útlendum nærfatnaði. Um matargerð er mér miður kunnugt. Yfir
sumartímann er alltaf hægt að fá nýjan fisk í héraðinu.
Húsavíkur. Hér í þorpinu fjölgar kúm árlega, og stuðlar hin mikla
nýrækt að því. Má heita næg mjólk allt árið. 7 um hverja kú. Fatnaður
fremur lélegur tízkufatnaður.
Þistilfj. Fatnaður fólks hefir verið sæmilegur. Skólabörn hlýtt búin.
Viðurværi fólksins heíir verið gott og farið batnandi, séstaklega hér í
Þórshöfn, vegna aukinnar mjólkurframleiðslu. Hafa flestöll heimili
lai og sum tvær.
Vopnafj. Heimilisiðnaður hefir lifnað talsvert við vegna vaxandi
efnahagslegra erfiðleika. Þetta varð skýrast á næstliðnum vetri. Ég
held, að mér sé óhætt að fullyrða, að síðan ég kom hingað, hafi aldrei
verið unnið jafnmikið að tóskap og nú í vetur. Einkum er það áber-
andi, hvað börn ganga nú meira í heimaunnum fötum en áður, og er
það mest prjónles. Hvað matargerð snertir, gerir hið sama vart við
sig, að menn reyna að búa meira að sínu en áður.
Reyðarfj. Fólk gengur yfirleitt í hlýjum fötum.
Fáskrúðsfj. Hér i þorpinu er fiskur auðvitað aðalfæðan, kaffi og út-
lent, hart, brauð er og mjög mikið notað, einkum um sumarmánuðina.
Fólk gefur sér þá ekki tíma til heimabökunar, en bakarí er hér ekk-
ert. Mjólk er töluverð, um 50 kýr í kauptúninu, og eru oft 2—3 um
hverja kú, svo flest heimili hafa þá einhverja kýrnyt.
Síðu. Mataræði er eins og það gerist í sveitum, fremur fábreytt, og
matartilbúning víða mjög ábótavant. Er ég hræddur um, að þessar
sveitir standi þar mörgum öðrum sveitum að baki. Hér er auðvelt að
rækta kartöflur og rófur; kemur ekki fyrir, að uppskera bregðist að
ráði, þó auðvitað sé hún misjöfn eftir árferði. Svo er hér talsverð sil-
ungsveiði i ám og sjávarlónum, einnig dálítið af sel. Þetta hvorttveggja,
garðrækt og veiði, hjálpar mörgum fátæklingum hér til þess að hafa
nægilegan og hollan mat, flesta tíma ársins, handa sér og hyski sínu.