Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Side 124
1951
— 122 —
fimleikakennslunni fyrir þessi veik-
byggðu eða bækluðu börn. Líkams-
æfingar skólanna virðast eingöngu
sniðnar fyrir sterkustu og færustu
börnin. Þar er hraðinn og áreynslan
svo mikil, að veikbyggðu börnin gef-
ast undir eins upp og verða annað
hvort að hætta eða hafa verra af.
Upprunalega mun skólaleikfimin hafa
verið tekin upp til að vega á móti
þeim miklu kyrrsetum, sem skólanám-
inu fylgja, og þar áttu allir að geta
verið með. Ég held, að það væri minui
skaði skeður, þótt 100 sterkustu og
liðugustu strákunum væri alveg sleppt
við leikfimi — þeir verða sér áreið-
anlega úti um íþróttir í leik og áflog-
um utan skólans — til þess að hægt
væri að sinna þeim veikbyggðu betur,
þar sem húsrúm og kennslukraftar
annars væru af skornum skammti. Að
öðru leyti má segja, að heilbrigði
barnanna hafi verið með ágætum. Éft-
ir atvikum má segja, að tannskemmdir
séu minni en búast hefði mátt við.
Hitt er einnig athyglisvert, að starf
skólatannlæknis virðist sýna lítinn ár-
angur, sbr. hinar fáu viðgerðu tennur.
Gera þarf ráðstafanir til að koma
þessu í betra horf með nánara sam-
starfi kennara, skólahjúkrunarkonu og
tannlæknis. Á vegum skólans fá börn-
in lýsi og ljósböð vetrarmánuðina, og'
er það óspart notað. 1 barni vikið úr
skóia vegna veikinda.
Eyrarbakka (154). Mest tann-
skemmdir. Óþrifakvillar ört þverr-
andi. Nokkur tilfelli stækkaðra kok-
og nefkokseitla. Örfá með sjóngalla.
Pes planus 1. Almennt taka skólabörn
lýsi, og mörg fá ljósböð í svartasta
skammdegi.
Selfoss (210). Anaemia 2, hypertro-
phia tonsillarum 42, — magna 9,
myopia 1. gr. 27, — gravis 4, scoliosis
22, — magna 2, lux. coxae congenita
1, pityriasis versicolor 3, adenitis colli
& submaxillaris 11, contusiones variae
27, vulnera varia 8, strabismus 4,
adipositas 1, pes planus 9, acne vul-
garis 2, rachitidis sequelae 1, bron-
chitis acuta 6, blepharitis 1.
Laugarás (143). Alltaf fækka lúsa-
skjólin, þótt ekki muni hún aldauða.
Býst ég við, að nú eigi hún öruggt
skjól á aðeins einu heimili i hérað-
inu. Þessir kvillar fundust í skóla-
börnum: Adenitis colli (smávægileg)
54, vegetationes adenoideae 13, adi-
positas 2, anaemia 10, blepharitis 1,
condaktylia pedis 1, eczema 2, hallux
valgus 1, heyrnardeyfa (lítils háttar)
1, hryggskekkja 4, hypertrophia ton-
sillarum (oftast litií) 25, ilsig 21,
neurosis cordis 1, pharyngitis 1, ra-
chitidis sequelae (hænubrjóst) 1, rhi-
nitis 1, sjónskekkja 4. Yfirleitt eru
börnin hraustleg og þroskaleg.
Keflavíkur (747). Af kvillum skóla-
barna eru tannskemmdir algengastar.
Bót er í máli, að nú er tannlæknir
setztur að í Keflavik, og ætlar fræðslu-
ráð að semja við hann um viðgerðir
á tönnum skólabarna. Allmörg börn
fengu kolbogaljósböð (Dr. Saugmanns
lampi) hjá héraðslækni við ýmsum
kvillum. Heilbrigði skólabarna yfir-
leitt góð. Áberandi framför er í út-
rýmingu óþrifa (lús og nit). Ekkert
barn í Iíeflavíkur- og Njarðvikurskól-
um (440 að tölu) með lús eða nit, og
er það i fyrsta skipti á þessu ári síðan
1942, að ég kom í héraðið.
E. Aðsókn að læknum og
sjúkrahúsum.
Um tölu sjúklinga sinna og fjölda
ferða til læknisvitjana, annað hvort
eða hvort tveggja, geta læknar i eftir-
farandi 22 héruðum:
% af
Tala héraðsbúum Ferðir
Ólafsvíkur ... 1719 131,5 63
Stykkishólms . 1950 120,4 76
Búðardals ... 440 36,8 162
Beykhóla .... - - 78
Þingeyrar ... 762 99,3 46
Flateyrar .... - - 43
Ilólmavikur .. 1766 143,0 64
Hvammstanga 1535 99,0 116
Blönduós .... — 194
Sauðárkróks . 2594 103,9 167
Hofsós — — 254
Ólafsfj 787 82,1 -
Akureyrar ... 6680 65,4 429
Grenivíkur .. 911 188,6 73
Kópaskers ... - - 98
Þórshafnar .. 710 71,6 61