Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Page 137
— 135 —
1951
aliena: í auga 8, aliis locis 2. Vene-
ficium diallymali 1, vulnera incisiva,
contusa et lacerata diversis locis 29.
Flateyrar. Slys flest litilfjörleg og
meinlítil, alls 78, sem greinast þannig:
sár 25, contusiones et distorsiones 20,
ambustiones á fingrum 3, corpora
aliena 7, fract. claviculae 2, digiti 4,
radii 1, calcanei 1, nasi 2, lux. digiti
1, distorsio acromioclavicularis 1.
Bolungarvíkur. Slysfarir eru hér al-
gengar, en oftast smávægilegar. Mið-
aldra maður datt aftur af bíl á hnakka;
lilaut comímotio og meiðsl á axlir.
Tvennt síSubrotnaði. Gamall maður
hlaut fract. colli femoris og ungur
piltur fract. malleoli, en mesta slysið
var ÓshliSarslysiS svo nefnda hinn 8.
júlí, er stór steinn féll ofan úr fjalli
í skriðunum rétt innan við Sporham-
ar á stóran áætlunarbíl með iþrótta-
fólk frá Akureyri; reif hann með sér
minni steina og malarhröngl og kom
aftast á bílinn, reif af afturgaflinn og
ldessti niður öftustu sætunum; krömd-
ust þar undir 2 piltar; hafa þeir lát-
izt samstundis, en þeir piltar, sem
sátu næst þeim í aftursætunum sjáv-
armegin, hlutu alvarleg meiðsli, ann-
ar kúpubotnsbrot og hinn commotio:
var annar vanginn rifinn úr munn-
viki og upp að eyra, lcjálkinn geng-
inn úr liði og efri kjálkinn eitthvað
brotinn, en augað slapp óskaddað.
Gerði ég að meiðslum þeirra til bráða-
birgða og bjó um þá, en nokkru síðar
komu læknar, lögregla og skátar frá
IsafirSi, er fluttu þá og hina látnu á
spítalann. Varð þaS að samkomulagi
með mér og héraðslækninum, að liann
athugaði meiðsli hinna látnu nánar og
skrifaði dánarvottorðin.
ísafj. Slys ekki mörg á árinu og flest
meinlítil. Grjótskriða féll á áætlunar-
bil undir ÓshliS utanverðri og varð
2 mönnum að bana þegar í stað, en
3 særuðust; fleiri slys urðu á þessari
leið, en minna háttar. Furðar mig, að
nokkur skuli fást til að aka þarna bil.
Ögur. Ambustio 1, contusio 3, dis-
torsio 1, corpus alienum corneae 2,
vulnera incisiva et contusa 7.
Hólmavikur. Slys fá og smávægi-
leg. Fract. radii: 15 ára stúlka datt
ofan i gat á bryggjuplani, antibrachii
(greenstick): 5 ára drengur datt í
leik, malleoli lateralis: gamall maður
hrasaði á hálku. Lux. humeri: 21 árs
maður datt á skiðum, menisci genus
1. Auk þess allmörg minna háttar sár,
brunasár, mör og tognanir.
Hvammstanga. Jeep-bifreiS úr Borg-
arfjarðarsýslu fór út af veginum
slcammt frá Reyltjum í Hrútafirði,
vegna þess aS „stýrisbolti“ brotnaði.
Bifreiðin stakkst á endann út í skurð-
inn, en valt ekki. 5 manns voru i bif-
reiðinni meS ökumanni, 2 karlar, 1
kona og 2 stálpaðar telpur. Konan
og yngri telpan sátu báðar i framsæti.
Þær meiddust báðar á höfði. Konan
hafði ca. 7 sm langan skurð á hægri
augabrún, en telpan „glóðarauga“;
einnig var hún handleggsbrotin; báð-
ar fengu heilahristing. ÖkumaSur
hlaut og höfuðhögg, heilahristing og
ca. 8 sm langan skurð á vinstri auga-
brún. Þau 2, karlmann og eldri telp-
una, sem aftur i sátu, sakaði lítt eða
ekki. FólkiS komst hjálparlaust heim
að bænum Reykjum, og þar gerðum
við hjónin að sárum þess um kvöldið.
Morguninn eftir sótti læknirinn á
Kleppjárnsreykjum það í bifreið. AS
öðru Íeyti er þetta hið helzta: 1. AS-
skotahlutir: 1) i auga 16, 2) i and-
liti 1 (glerbrot i kinn, 8 ára telpa datt
á flösku og braut hana), 3) i fingri 1
(nál), 4) í læri 1 (járnflís), 5) í þjó-
hnapp 1 (greniflis). 2. Beinbrot
8: Viðbeinsbrot 2, rifbrot 3, öklabrot
1, framhandleggsbrot 2: 1) Gömul
kona datt á hálku, hlaut einnig brot
á 1. miðhandarbeini og marðist dá-
lítið á fæti og síðu, 2) 2 ára telpa
datt ofan af kommóðu, sem hún hafði
klifrað upp á á aðfangadagskvöld. 3.
Bruni 8. 4. Slcurðir og högg-
sár 16. 5. Tognanir 8: Um ökla
5, um hné 2, í axlarlið 1. 6. Lið-
h 1 a u p á f i n g r u m 2 . Áverkar í
bilslysum ekki meðtaldir.
Blönduós. Bílstjóri úr Reykjavik ók
út af veginum í Æsustaðaskriðum, svo
að bíllinn fór margar veltur niður að
Blöndu, en bílstjórinn rotaðist, svo að
heilinn lá úti. Nokkrum metrum norð-
ar fór bíll með um 20 manns út af
veginum, en valt ekki niður brekkuna,
enda urðu þar ýmis minni meiðsli,