Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Side 139
— 137 —
1951
dimmt að kvöldi og rigning á. Einn
rimil vantaði í tröppuna, og þar eð
dimmt var, tók maðurinn ekki eftir
þessu, varð því fótaskortur og féll ofan
á þilfar skipsins. Við fallið brotnaði
hryggurinn, en þó gekk maðurinn
heim til sín, sem að vísu var stutt
leiö, og upp á þriðju hæð. Hann hafði
þó rnjög' mikla verki í bakinu og var
þegar eftir heimkomuna fluttur í
Sjúkrahús Akureyrar; var þungt hald-
inn fyrstu dagana á eftir, en batnaði
þó smátt og smátt og er nú að mestu
leyti albata. 2) 47 ára kveiimaður lenti
í bílslysi austur á Fljótsheiði, og staf-
aði þetta af því, að sólin blindaði ann-
an bilstjórann. Konan fékk mikinn
heilahristing, nefiö brotnaði, og einnig
skarst hún mjög mikið í andliti. Um
áramótin er hún að mestu búin að ná
sér, og vonir standa til, að hún nái
sér að fullu. 3) 72 ára kona var að
bera eld milli húsa, er eldurinn læsti
sig í föt hennar, og brann hún mjög
mikið á báðum ganglimum og einnig
á báðum höndum. Sárin greru seint,
og einkum á öðru lærinu. 4) 64 ára
karlinaður var við vinnu uppi á hús-
þaki, hrapaði niður og lærbrotnaði,
cn er um áramót að mestu gróinn
sára sinna. 5) 56 ára kona datt á hlað-
varpanum í hálku og lærbrotnaði um
mitt læri. 6) 34 ára karlmaður var í
tuski við unglingspilt, og er pilturinn
varð undir i viðureigninni, varð hann
svo reiður, að hann þreif ílát með
heitu vatni, er stóð þar nálægt, og
skvetti framan í manninn. Fékk hann
allmikinn bruna í andlit og niður eftir
hálsi af völdum hins heita vatns. 7)
16 ára piltur datt í leikfimi og braut
á sér hnéskelina. 4) 48 ára karlmaður
i'ann til á hálku og reigðist aftur yfir
sig, án þess þó að detta. Fékk ruptura
úuadricipitis femoris. Varð að sauina
vöðvann saman, og átti maðurinn lengi
i þessum meiðsluin. 9) 44 ára karl-
niaður stóð aftan við vörubíl, sem
ætlaði að aka áfram, en í stað þess
ók vörubillinn skyndilega aftur á bak,
og klemmdist maðurinn á inilli vöru-
bílsins og húsveggs, er hann stóð við.
áleð snarræði gat hann þó vikið sér
það mikið til, að ekki varð nema
hægri handleggur lians milli bilsins
og veggjarins, enda hefði vafalaust
orðið þarna banaslys annars. Svo mik-
ill varð áverkinn á hægra liandlegg,
að stórt stykki tók úr um olnbogann.
Moluðust beinin þarna í sundur, aðal-
lega humeruscondylarnir, en þó brotn-
uðu framhandleggsbein líka. Blóðrás
hélzt þó góð fram í framhandlegg og
hönd, og hélt því hinn slasaði maöur
limnum og hefur nú orðið nokkur not
af honum. 10) 11 ára drengur datt af
hjóli fram af vegarbrún og braut í
sundur lærbeinið. 11) 20 ára sjómað-
ur var háseti á togara, sem var að
leggja að bryggju á Hjalteyri, slasað-
ist mikiö á þann hátt, sem hér segir:
Hann stóð frammi á hvalbak skipsins
og var að vinna við landfestar þess
(gildan vír), er skipið tók snögglega
aftur á bak, og slitnuðu landfestarnar
við þetta snögga átak. Annar endi
landfestanna slóst á manninn, og kom
aðalhöggið framan á vinstra læri,
kramdi sundur allt hold framan á
lærinu og braut lærlegginn nokkru
ofan við hnéð, þannig að báðir bein-
endarnir stóðu út úr sárinu. Einnig
brotnaði liandarbaksbein og fleiri
skrámur voru hingað og þangað á
líkama mannsins. Var hann þegar
fluttur i Sjúkrahús Akureyrar og þar
gert eftir mætti að sárum hans; greru
þau vonum framar þannig, að um ára-
mót hafði slasaði maðurinn sæmileg
not af fætinum. 12) 50 ára karlmaður
var að líta eftir kúm og fór í því
skyni upp á allháan votheysturn, en
var svo óheppinn, að honum skrikaöi
fótur, er upp á turninn kom, og féll
hann niður í botn turnsins. Við falliö
brotnaði annar lærleggurinn. 13) 22
ára kona lenti í bílslysi, er jeppabill
valt út af veginum uppi á Reykjaheiði.
Konan fékk mikinn heilahristing og
viðbeinsbrotnaði. Var meðvitundar-
laus í marga klukkutima, en náði sér
aftur, er frá leið. 14) 29 ára kona var
með langferðabifreið á leið frá Siglu-
firði til Akureyrar. Hálka var á veg-
inum og bíllinn keðjulaus. Er komið
var að svo nefndum Öxnadalshólum,
mætti bifreiðin annarri bifreið, er var
á leið frá Akureyri að Bakkaseli.
Bifreiðarstjóri langferðabifreiðarinnar
blindaðist af Ijósum hinnar bifreiðar-
18