Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Qupperneq 151
— 149 —
19S1
Akranes. Á árinu voru pöntuð tæki
og áhöld til sjúkrahússins, en afhend-
ing hefur dregizt.
Ólafsvíkur. Sjúkraskýli finnst mér
tilfinnanlega vanta.
Búðardals. Hafin bygging nýs lækn-
isbústaðar í Búðardal i júnímánuði, og
er byggingu langt komið; mun líklega
verða lokið næsta sumar.
Þingeyrar. Sjúkraskýlið starfaði allt
árið. Starfskraftar skýlisins ófull-
komnir (starfsstúlka héraðslæknis),
enda aðeins hugsað um bráðbirgða-
skýli fyrir bráðveika sjúklinga, sem
bíða ferða á sjúkrahús, eða þurfa
skjótra aðgerða við. Fyrirkomulag
þetta er óheppilegt og veldur miklu
erfiði fyrir starfskrafta læknisfjöl-
skyldunnar. Sjúkraskýli eru nauðsyn-
leg í vel flestum læknishéruðum, þar
sem ekki eru sjúkrahús. En þau þarf
að reka með eigin starfsliði og full-
numa hjúkrunarkonu1), enda furðan-
leg vansmíð á heilbrigðislöggjöf vorri,
að ekki sé talið sjálfsagt að hafa fast-
ráðnar héraðshjúkrunarkonur til að-
stoðar þeim héraðslæknum, er þess
þurfa.2) Fyrirkomulag það, sem haft
er á um rekstur þessa sjúkraskýlis,
verður aldrei vinsælt eða til fram-
búðar.
Flateyrar. Mjög tíðkast nú, að sjúk-
lingar komi til Flateyrar til rann-
sókna og dveljist á sjúkraskýlinu, en
kemur hart niður á sjúkrasamlögun-
um. Aðsókn að sjúkraskýlinu með
meira móti. Þegar ég kom hér, var
stúlka ráðin að sjúkraskýlinu og það
tekið til starfa að nafninu til. Öll var
aðkoma hér liin ömurlegasta, eldavél
ótengd, húsið kalt, alsett myglublett-
um og slagað, baðið og sumir vaskar
ónothæfir. Hafði ekkert verið gert,
þrátt fyrir kvartanir þeirra, er síðasta
mánuðinn höfðu dvalizt i húsinu.
Gluggar hripláku vatni og vindi. Allt
fraus, sem frosið gat, á nóttum. Eftir
nokkurt þjark gat ég loks útvegað 30
þúsund króna lán, og var þá hafizt
handa til úrbóta. Kom þá í ljós, að
húsið var verr farið en ætlað var, ofn-
1) Hvað mundi það kosta á legudag, og hver
á að greiða?
2) Hver bannar að ráða slikar hjúkrunar-
konur?
arnir fullir af ryði, hitakúturinn ó-
nýtur, þakrennan ótjörguð, svo að
vatnið hafði sigið niður í veggina og
sprengt þá, rör sprungin í veggjun-
um, vatn hafði komizt í rafmagns-
leiðslur o. fl. Má nú vel heita ibúðar-
hæft. Ómögulegt, að húsið beri sig, þó
að læknirinn borgi % af upphitun,
ljósum og 520 krónur i húsaleigu,
enda var svo komið, að áhaldasjóði,
sjúkraskýlissjóði og húsaleigu læknis
var ausið í reksturinn, en allt bar að
sania brunni, halla. Árið 1950 er á
skýrslu færður rekstrarhalli, kr.
7264,57, en þá er búið að færa á tekju-
lið húsaleigu læknis, kr. 4030,00 +
kr. 1500,00 styrk úr sýslusjóði, svo að
raunverulegur rekstrarhalli er kr.
12774,95 á 9 mánuðum. Hvað hefði
hann orðið allt árið, að viðbættu við-
haldi? Tillögur sjúkraskýlisnefndar til
útbóta voru: 1. Hækkun á húsaleigu
læknis. 2. Skerðing á hlunnindum
læknis, t. d. með öðruvísi greiðslu-
skiptingu. Hrepparnir hafa fengið nóg
og vilja losa sig við rekstur hælisins
og viðhaldsskyldu, en þriðja lausnin
var að leigja lækninum það. Bauðst
ég til að taka það eitt ár til reynslu
gegn því, að hrepparnir sæu um við-
hald og gæfu eftir húsaleiguna. Nei,
það var ekki til þess ætlazt, að ég
færi að stofna til gróðafyrirtækis.
Hrepparnir hér skilja nauðsyn þess
að hafa þetta skýli, en þótt þeim hafi
verið svo gott sem gefið það, hafa
þeir ekki fjárráð til að reka það.
Boliingarvíkur. Vatns- og hitalögn
voru lagðar i læknis- og sjúkraskýlis-
bygginguna, hún múrhúðuð að utan
og unnið að íbúðarhlutanum. Er fram-
kvæmd verksins vægast sagt mjög
hægfara og áhugi lítill, og er mér það
sorgarefni og lítt skiljanlegt, því að
ekki hefur staðið á framlögum af
hálfu ríkissjóðs.
ísafj. Sjúkrahúsið rekið á sama hátt
og siðast liðið ár. Halli er stöðugt á
rekstrinum, enda er húsið dýrt í
rekstri og starfsfólksfrekt. Á sjúkra-
húsinu er nú stöðugra um vist hjúkr-
unarkvenna, og það vel skipað að þvi
leyi. Húsið er i góðu ásigkomulagi að
innan, en vanhirt hið ytra í mesta
máta.