Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Síða 159
— 157 —
1951
D. Matvælaeftirlit ríkisins.
Atvinnudeild Háskólans hefur látið
í té eftirfarandi skýrslu um rannsókn-
ir sínar á matvælum vegna matvæla-
eftirlits rikisins á árinu 1951:
I. Mjólk, mjólkurvörur, neyzluvatn
o. fl.
Til gerlarannsókna bárust Atvinnu-
deildinni 1401 sýnishorn af mjólk,
mjólkurvörum, neyzluvatni o. fl., sem
tekin voru af heilbrigðisyfirvöldunum
eða í samráði við þau. Sýnishornin
skiptust þannig eftir héruðum og teg-
undum:
Borgarlæknir i Reykjavik: Mjólk
853. Rjómi 84. Rjómais 96. Mjólkur-
flöskur 140. Uppþvottavatn 146. Vatn
og sjór 67. Ölflöskur 10. Skóf (mygla)
1. Samtals 1397.
Héraðslæknir á ísafirði: Mjólk 4.
Um niðurstöður rannsóknanna skal
þetta tekið fram:
Mjólk til gerilsneyðingar: Flokkun,
69 sýnishorn: 23 í I. flokki, 46 í II.
flokki. Gerlafjöldi, 70 sýnishorn: 47
með gerlafjölda undir 1 milljón pr. 1
sm3, en 23 með 1—10 milljónir pr. 1
sm3. Mjólk til neyzlu, ógerilsneydd:
Af 107 sýnishornum reyndust 13 hafa
of litla feiti. Gerlafjöldi, 106 sýnis-
horn: 59 með gerlafjölda undir 30
þúsund pr. 1 sm3, 25 með 30—100
þúsund og 22 með yfir 100 þúsundir
pr. 1 sm3. Mjólk, gerilsneydd: Fos-
fatase-prófun, 649 sýnishorn: Öll
nægilega hituð. Gerlafjöldi, 472 sýn-
ishorn: 442 sýnishorn með gerlafjölda
undir 30 þúsund pr. 1 sm3, 23 með
30—100 þúsund og 7 með yfir 100
þúsund pr. 1 sm3. Colititer, sömu
sýnishorn: 20 pósitív í 2/10—5/10
sm3 og 8 í 1/100 sm3. Af 519 sýnis-
hornum reyndust 43 hafa of litla feiti.
Rjómi, gerilsneyddur: Storchs-prófun,
84 sýnishorn: Öll nægilega hituð.
Feiti, sömu sýnishorn: 5 höfðu of
litla feiti. Gerlafjöldi, 83 sýnishorn:
77 með gerlafjölda undir 30 þúsund
pr. 1 sm3, 3 með 30—100 þúsund og'
3 með yfir 100 þúsund. Cóli-títer,
sömu sýnishorn: 8 pósitív í 1/10 sm3
og 2 í 1/100 sm3. Rjómaís: Gerlafjöldi,
92 sýnishorn: 71 með gerlafjölda und-
ir 100 þúsund pr. 1 sm3, 14 með 100
þúsund til 1 milljón og 7 með yfir 1
milljón pr. 1 sm3. Cóli-titer, sömu sýn-
ishorn: 15 pósitív í 1/10 sm3, 4 i
1/100 og 1 í 1/1000 sm3. Mjólkurflösk-
ur: Af 140 flöskum voru 58 vel þvegn-
ar, 25 sæmilega og 57 illa þvegnar.
Ölflöskur: Af 10 flöskum voru 5 vel
þvegnar, 1 sæmilega og 4 illa þvegnar.
Vatn og sjór: Af 46 sýnishornum af
vatni og sjó til baða reyndust 13 óað-
finnanleg, 9 sæmileg og 24 ónothæf.
Uppþvottavatn: Sýnishorn metin af
borgarlækni.
II. Ýmsar neyzln- og nauðsynja-
vörur.
Auk framantalinna rannsókna voru
rannsökuð á árinu 284 sýnishorn
neyzlu- og nauðsynjavöru, sem hér
segir (gallaðra sýnishorna getið í
svigum): Aldinsafi og aldinsaft 5 (2
lituð með tjörulit, 1 ranglega auð-
kennt), aldinsulta og aldinmauk 2 (í
báðum reyndist of mikið af vatni),
edik 1, fiskmeti 43, hveitibrauð 4 (i
1 fannst koparflís, 1 tréflís, 1 smurn-
ingsfeiti), gosdrykkir 19, kaffi 7, kart-
öflur 4 (i 1 fannst Fusariumsveppur),
kjötmeti 8, kornvara 3, krydd 1
(reyndist aðallega sterkja og sykur),
ostur 8, rjómais 93 (í 35 of lítið af
feiti), smjör 7, smjörlíki 21, þurrk-
aðir ávextir 9, öl 8, ýmislegt 41 (í 1
sýnishorni af brennivíni fannst lýsól,
1 sýnishorn af lituðu sykurvatni með
kjörnum var ranglega auðkennt). Sam-
kvæmt þessu reyndust 47 hér talinna
284 sýnishorna, eða 16,5%, að meira
eða minna leyti gölluð vara.
• i
Rvík. Framkvæmt á sama hátt og
árið áður. Við matvælaeftirlitið unnu
3 eftirlitsmenn, en við annað heil-
brigðiseftirlit 2. Samtals fóru þessir
5 eftirlitsmenn í 7427 eftirlitsferðir á
árinu. Hér fara á eftir skrár, I og II,
yfir framkvæmd og nokkrar niður-
stöður þessa eftirlits: