Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Side 191
— 189 —
1951
faðernismála var 11 sinnum óskað á-
lits míns. Kærur, alls 23, voru sendar
lögreglustjóra fyrir brot á ákvæðum
heilbrigðissamþykktarinnar, 15 vegna
gallaðrar vöru, 4 vegna óþrifnaðar og
4 vegna ýmissa annarra brota.
Akureyrar. Eftirtaldar rannsóknir
voru gerðar samkvæmt beiðni lög-
reglunnar: Rannsóknir á alkóhóli í
blóði á 6 mönnum, ávallt i sambandi
við bílaárekstra. Blóðrannsókn i
barnsfaðernismáli einu sinni, og sál-
fræðileg rannsókn og greinargerð 4
sinnum. Auk þess leitaði lögreglustjóri
oft upplýsinga og ráða hjá mér í sam-
bandi við ýmis mál, þótt ekki væri
af minni hálfu látin í té sérstök grein-
argerð i þeim málum.
Seyðisfj. Krufning var gerð á 27 ára
sjómanni af enskum togara. Komið
var með sjúklinginn dauðvona, og
andaðist hann á leiðinni i sjúkrahús-
ið. Líkskurður leiddi í ljós vel góm-
stórt sprungið sár á duodenum. Cavum
peritonei var fullt af gulum ávaxta-
drykk.
22. Sótthreinsun samkvæmt
lögum.
Tafla XX.
Samkvæmt sótthreinsunarreikning-
um, er borizt hafa landlæknisskrif-
stofunni, hefur sótthreinsun heimila
farið 51 sinni fram á árinu á öllu
landinu, og eru tiðasta tilefnið berkla-
veiki (75%), skarlatssótt einu sinni,
en önnur tilefni ekki greind.
23. Húsdýrasjúkdómar.
Ólafsvíkur. Tiðast doði i kúm og
þá venjulega ráðlagt af dýralækni Sol.
calcii borogluconatis til inndælingar
(1 eða fleiri inndælingar á 240 ccm).
ísafí. Lítið áberandi. Þó verður
öðru hverju vart sulla i sláturfénaði
á haustin.
Hólmavikur. Eins og fyrr getur,
fundust við haustsmölun nokkrar
kindur á Hólmavík, sem grunaðar
voru um mæðiveiki. Var sá grunur
staðfestur af sérfræðingum, sem komu
frá rannsóknastöðnni á Keldum. Varð
svo loks að ráði, að fyrirskipaður var
niðurskurður alls sauðfjár í Hólma-
vik og næstu bæjum. Vakti þetta mik-
inn ugg meðal bænda, sem von var,
en niðurskurður og fjárskipti höfðu
farið fram 3 árum áður.
Hvammstanga. Nokkuð bar á doða
og júgurbólgu i kúm. Heilbrigði sauð-
fjár góð. Lítið um sulli í sláturfé.
Blönduós. Húsdýrasjúkdómar þeir,
sem herjað hafa sauðstofn bænda
undanfarin ár, gerðu nú ekki vart við
sig, enda hefur verið skipt um fjár-
stofn í öllu héraðinu. Nýi fjárstofn-
inn, sem aðallega er fenginn af Vest-
fjörðum, hefur reynzt vel.
Sauðárkróks. Sauðfé fjölgar nú óð-
um, og vonandi, að ekki komi aftur
upp mæðiveiki eða garnaveiki. Nokk-
uð hefur borið á smitandi húðsjúk-
dómi i sauðfé; kemur aðallega í fæt-
ur, í kringum klaufir, en ekki mun
veiki þessi skæð.
Ólafsfí. Talsvert mikið um húsdýra-
sjúkdóma, einkum i kúm. Mikið um
svokallaðan doða, einnig nokkuð af
júgurbólgu.
Grenivíkur. Alltaf ber töluvert á, að
kýr fái doða eftir burð. Er þá dælt
lofti i júgur, gefið sol. calcii boro-
gluconatis og stundum chlorali
hydras, og reynist þetta allvel. Einn
bóndi hér í sveit gefur kúm sínum
fosfórlýsi hálfan mánuð fyrir og eftir
burð; liefur hann gert þetta nú í ca.
3 ár, og reynist ágætlega. Nú fá kýr
hans ekki doða, en áður en hann
byrjaði á þessu, fengu þær hann oft
um burð og voru óhraustari. Senn eru
liðin 6 ár, siðan hér urðu fjárskipti.
Síðan hefur féð verið vel hraust og
þvi fjölgað.
Vopnafí. Sauðfjárpestir, garnaveiki
og kýlapest, gerðu ákaflega mikið tjón.
Bakkagerðis. Garnaveiki í sauðfé
gerir bændum mikinn skaða. Talsvert
ber á doða í kúm.
Seyðisfí. Alltaf ber mikið á óhreysti
i kúm, sérstaklega doða. Fjárpestir
hér ekki áberandi.
Kirkjubæjar. Húsdýrasjúkdómar
engir skæðir. Mæðiveiki og garna-
veiki hvergi fundizt.
Vestmannaeyja. Hvorki mæðiveikin
né garnaveikin hafa enn flutzt hingað,
en ótrúlegt andvaraleysi ríkir þó hér