Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Page 7
I. Skýrsla Tilraunastöðvarinnar á Akureyri
árin 1955 og 1956.
ÁRN I JÓNSSON
1. Veðurfar.
a. Veðrið 1955.
Janúar til april. Um áramótin gerði þíðviðri og tók mikið til allan
snjó á láglendi í fyrstu viku mánaðarins, en síðan gekk í frost og norðan-
og norðvestanátt með nokkurri snjókomu, og var færð tekin að spillast,
er á leið mánuðinn.
Frost héldust allan febrúar, en úrkoma var lítil, stillur og bjartviðri
frá 6.-22., flesta daga. Aðalvindátt var norðlæg, en annars var oftast gola.
Smávegis hríðaði þann 24. og 25. Annars úrkomulaust.
Með marzbyrjun hlýnaði í veðri og hélzt svo til þess 15., en þá kólnaði
í veðri, og nokkur hríð var af og til fram að 22., en úr því var úrkomulaust
út mánuðinn. Þann 29. hlýnaði í veðri, og vindur gekk til suðurs. Hélzt
nú einmunatíð allan apríl, og voru mikil hlýindi um miðjan mánuðinn.
Var meðalhiti sólarhringsins dagana 14,—18. apríl 10—11° C. Úrkoma var
mjög lítil og átt suðlæg. Um 20. apríl var allur snjór farinn af túnum í
Gróðrarstöðinni og jörð víða að verða klakalaus. í lok mánaðarins var
farið að sjá nokkurn vorblæ á trjám og einkum runnum.
Mai. í byrjun maí gekk vindur til norðvesturs og síðar norðurs, en
frostlaust var samt um nætur hinn 1,—8. og jörð mikið til þíð og mikið
farin að þoma. Vorstörf gátu því hafizt í byrjun mánaðarins. En 9. maí
kólnaði í veðri og gerði frost, og að morgni þess 11. var töluvert frost og
jörð alhvít. Þann 11.—16. var hríðarveður alla daga og frost sem um há-
vetur og oftast norðanstormur. Þann 16.—20. hlýnaði heldur í veðri og
norðanáttin gekk niður, en þó var fremur kalt, 1—2° C meðalhiti en sól-
bráð á daginn. Upp úr 20. maí hlýnaði í veðri og vindur gekk til suðaust-
urs og suðurs, og var mjög hlýtt í veðri marga daga. T. d. fór hitinn upp
í 21.6° C þann 27. maí.
Júni. Hlýindi héldust fyrstu daga mánaðarins, en þann 4. brá til
norðan- og norðaustanáttar og kólnaði þá í veðri. Hélzt norðlæg átt fram
til 25. júní með lítils háttar úrkomu flesta daga og fremur köldu veðri