Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Page 53
51
a. b. c. d. e.
Sterkja % 11.2 11.0 11.1 11.4 11.0
Smælki % 7.5 7.6 6.5 6.7 6.8
Heildaruppskera 156.1 176.1 178.7 149.4 164.4
Hlutfallstölur vinnu við arfahr. . .. 100 19 33 98 26
Vaxtarauki.
b—a ...................................... 20.0%
c—a ...................................... 22.6%
d-a ....................................... 6.7%
e-a ....................................... 8.3%
Tilraunin er gerð á nokkuð leirblöndnum moldarjarðvegi, sem var
forræktaður með kartöflum og rófum í fjögur ár en opinn 1954 og þá
tættur nokkrum sinnum, til þess að drepa arfa og varpasveifgras. Mikið
af illgresi var í landinu. Útsæði var Gullauga, og sett var niður 7. júní og
áburðí dreift sama dag. Reitirnir voru 18 m2 og uppskerureitirnir 9 m2.
Vaxtarrými 25 x 60 cm. Uppskerugrös 60 á reit. Endurtekningar voru 4.
Þann 24. júní var tröllamjölinu dreift og lyfjunum úðað með hand-
dælu. Var þá kominn þéttur þeli af arfa. Var tröllamjölinu dreift á dögg.
Sól var allan daginn, en um nóttina gerði skúr. Úrkoman var þó ekki
mælanleg. Fyrripart dagsins þann 25. voru skúrir, og mældist úrkoma að
morgni þess 26. júní 3.0 mm. Þann 28. júní byrjaði að koma upp, og varð
ekki vart skemmda á grösunum. Ótvíræðar verkanir sáust þá á arfanum
í liðunum b, c og e, en litlar á d.
Þann 16.—17. júlí var arfi tekinn úr öllum liðum og fjarlægður. Var
þá tekinn nákvæmur tími við hreinsun á hverjum reit. Aftur var arfi tek-
inn úr liðunum a og d þann 16. ágúst og tíminn tekinn.
Þann 3.-6. október var tekið upp úr tilrauninni, og var þá arfi í henni
allri, en einna blómlegastur á c-reitum.
4. Tilraun með gulrófnaafbrigði 1956.
Uppskera:
hkg/ha hluttöll
a. íslenzkar, stofn Ragnars Ásgeirssonar................. 96.3 100
b. Gauta-gulrófur ........................... 71.5 74
c. Krasnoje Selskoje..................................... 56.0 58
d. Dalarófur............................................ 104.3 108
Dalarófurnar eru líkastar næpum að útliti og bragðgæðum, og kemur
því ekki til greina að selja þær sem gulrófur. Þær voru í sumar miklu
minna skemmdar af maðki en gulrófumar og einnig bar minna á vaxt-
arsprungum.
4*