Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Qupperneq 55
53
sett niður sem aflmótor fyrir blásarann, og er ætlunin að nota hana jafn-
framt sem vararafstöð. Var því fengin ný rafstöð fyrir heimilin. Fullgerð
munu húsin standa í 310 þús. kr., eða um 1030 kr. á kind, og er þá reikn-
að með öllum kostnaði, einnig hitaveitu í sambandi við súgþurrkun, raf-
magni, jöfnun umhverfis húsin o. fl. Alls er rúmtak húsanna um 2490 m3,
og verður byggingarkostnaður því um 125 kr. á hvern m3. Það skal tekið
fram, að um 15% heildarkostnaðar við framkvæmdina er flutningskostn-
aður á efni.
Alíir, sem komið hafa í fjárhúsin, eru sammála um, að það séu þau
skemmtilegustu fjárhús, sem þeir liafi komið í.
Yfirsmiður við byggingarnar var Stefán Guðlaugsson frá Reykhólum.
Teikningu gerði Teiknistofa landbúnaðarins í samráði við tilraunastjóra.
A árinu 1956 var lítið um framkvæmdir umfram það, sem að framan
greinir, en nokkuð um lagfæringar og kaup á munum. Eins og áður segir,
var keypt ný rafstöð, og kostaði hún um 30 þús. kr. niðursett. Keyptur var
þurrheysblásari (norskur), og kostaði hann hingað kominn nær 8 þús. kr.
Af sauðfé var keypt: 25 ær frá Jóni Kr. Ólafssyni, Grund, sem brá búi
og fluttist til Reykjavíkur. Voru þetta úrvalsær af mjög góðum stofni.
Auk þess voru keypt fimm úrvals gimbrarlömb og ennfremur tveir hyrndir
lambhrútar til æxlunar með hyrndu ánum frá Grund. Voru hrútamir
fengnir frá Látrum í Rauðasandshreppi. Þessi kaup námu alls nær því
14 þús. kr. Þá voru á árinu keyptir þrír vetrungar fyrir kr. 3000.00.
í framræslu (þ. e. holræsi), girðingar og ræktun var á árinu lagt um
12 þús. kr., og er þar innifalinn undirbúningur á landspildu til tilrauna-
starfsins. Með grasfræi var lokað 1 ha.
Skipt var um gólfdúk í eldhúsi íbúðarhússins og settar plötur á eld-
húsborð. Einnig settar nýjar skápahurðir í svefnherbergi o. fl. smávegis.
Kostaði þetta alls um 5 þús. kr. Er nú íbúðarhúsið mjög vel frá gengið,
nema hvað eftir er að múrhúða kjallara.
b. Búreksturinn.
Eins og um getur í síðustu skýrslu, var kúnum fargað haustið 1954.
Og húsleysi sneið sauðfjárræktinni mjög þröngan stakk, þangað til nú í
vetur, að fjárhúsin eru fullgerð.
Vanhöld urðu mikil á árinu 1955. Fjórar ær drápust yfir sumarið
(urðu afvelta) og 34 fóru í sjóinn úr Húsey snemma í nóvember. Er það
mjög fátítt, að missa fé úr eyjum á þeim tíma. Fimm lömb drápust úr
bráðadauða í eyjum (öll bólusett) og tvær ær og þrjú lömb drápust úr
Hvanneyrarveiki rétt um áramótin. Var því fjáreignin um áramótin 1955
—1956: 101 ær, 57 gemlingar, 5 lambhrútar og 4 hrútar fullorðnir.
h
L