Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Page 78

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Page 78
76 Árið 1955: Árið 1956: Hitamagn ............................ 1213.5 C° 1076.4 C° Regnmagn............................. 552.5 mm 263 mm Vaxtartími .......................... 110 dagar 106 dagar 3. Tilraunir með eyðingu illgresis í kartöflum. Gerð var tilraun 1955 með arfaeyðandi efni, Herbasol s/4 lítra í 100 lítra vatns og svo með Aero-syanat 4%. Þessar blöndur voru hvor um sig notaðar á þrjá 36 m2 reiti 11.1 líter á reit og úðað í þurru veðri, 15. júlí, daginn eftir var komin rigning. Herbasolið verkaði betur á arfann, en Aero-syanatið. Hins vegar virtust bæði þessi efni lítið gagn gera, til þess að halda arfanum niðri, því í byrjaðan ágúst náði arfinn alveg yfirráðum í garðinum. Vigtað var af þeim reitum, sem úðað'ir voru með þessum efn- um, og varð þar nokkuð minni uppskera en þar sem ekki var úðað, en arfanum haldið niðri með venjulegri arfahreinsun. Þessi athugun, sem er gerð við óvenjuleg veðurskilyrði, sker þó engan veginn úr hve mikið gagn mætti hafa af arfaeyðandi efnum við kartöflurækt eða aðra garðrækt. Þarf og verður að rannsaka það nánar og verður vafalaust gert á næstu árum. 3. Starfsskýrsla 1955 og 1956. Jafnhliða tilraunum í jarðrækt hefur sem að venju verið nokkur ann- ar rekstur. Kúabúið er nú 20 kýr, 1 naut og 2 vetrungar. Kúabúið hefur verið rekið tvö undanfarin ár með talsverðum halla og er eins og stend- ur byrði á starfseminni. Stafar þetta af illkynjaðri júgurbólgu og vaxandi kauphækkunum. Er óráðið enn hvernig þetta verður lagfært. Hrossaeign búsins er nú 3 hestar, og lítið notaðir, því allt er nú unnið með vélum, jarðvinnsla, sáning og heyskapur. Varið hefur verið til verkfæra- og véla- kaupa nær 50 þús. kr., ný sáðvél o. fl. verkfæri. Vantar þó enn talsvert af vélum, til þess að vel sé, og verður unnið smám saman að því að auka verkfæraeignina, því það virðist nú eina leiðin til þess að draga úr kaup- greiðslum. Ræktunarland stöðvarinnar hefur aukizt um 4 ha bæði árin, og er sú aukning aðallega í sandgirðingu stöðvarinnar á Rangárvöllum. Er nú hið ræktaða land um 60 ha á Sámsstöðum og um 12 ha í sandræktarstöð- inni á Rangárvöllum. Heyskpur varð 1955 um 800 hestar taða, en 1956 um 1100 hestar, auk hálms af korni og grasfræi. Kornuppskera varð um 80 tn. af byggi og höfrum 1955 og um 90 tn. 1956. Grasfræ innan við 100 kg hvort árið. Bæði árin hafa reynzt slæm fyrir þessa framleiðslu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.