Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Page 119
117
* ur. í skápnum er loftrás en ekki vifta. Góð hitastilling er á honum. Á
skápnum er hitamælir, svo auðvelt er að fylgjast með hitanum. Sams kon-
ar skápar eru á öllum tilraunastöðvunum.
Hér á Hvanneyri hafa verið notaðir blikkbakkar til að þurrka grasið
í. Bakkarnir eru 35 cm að lengd, 15 cm að breidd, 5.3 cm háir og 570—
600 g að þyngd. í botni bakkanna er net úr málmþræði. Möskvarnir eru
um 3.5 mm á hvern veg. Þeir virðast vera heldur stórir, því að dálítið af
heyi hrynur niður um þá. Líklega væri heppilegt að þeir væru ekki meira
en 2 mm á hvern veg. Bakkarnir eru óþægilega þungir, bezt væri að
þyngd þeirra væri 100—200 g, en þá þyrftu þeir að vera úr léttmálmi.
Gömul skálavog var notuð til að vega sýnishornin. Hún var frekar
ónákvæm, þannig að erfitt var að hafa eins gramms nákvæmni.
Haraldur Antonsson framkvæmdi allar athuganirnar.
Athugun á því hvort hetra er að þurrka i netpokum eða skáp.
24. ágúst var gras slegið af nýrækt. 6 prufur voru teknar og settar í
netpoka, 2000 g í hvern. Aðrar 6 prufur voru teknar og settar í skápinn
og þurrkaðar þar. 100 g voru vigtuð á hvern bakka. Þurrkað var í 6 klst.
við tæpar 100° C. Pokarnir voru hins vegar látnir hanga þangað til 13.
nóvember eða í 50 daga. Niðurstaðan varð þessi:
Þurrkskápur Netpokar
þurrefni % hey %
Nr. 1 25.5 25.4
- 2 27.5 27.0
- 3 26.0 25.6
- 4 26.0 26.3
- 5 26.0 26.2
- 6 22.5 26.8
Meðatal 26.1 26.2
Sennilegt meðalfrávik 0.75 0.66
Samanhurður á því að þurrka gras i bökkum og í bréfpokum.
Á þessu atriði voru gerðar tvær athuganir. Sú fyrri var gerð 11. septem-
ber. notað nýslegið túngresi. Það voru vigtuð 100 g bæði í pokana og
bakkana. Hvoru tveggja var hitað í 24 klst. við 60—70 gráðu hita, síðan
vigtað út, en látið inn aftur og hitað í 2 klst. við 100° C. — Seinni athug-
unin var gerð 15. september.
I