Saga - 2013, Page 22
Tómasar á Þverá enda jók hann ýmsu við efni eldra handritsins,
meira efni en Gísli bætti við skrif espólíns, auk þess sem hann
skrifaði sérstaklega um Skáld-Rósu. Þá er annar stíll á frásögn hins
annálaða stílista Brynjúlfs en Tómasar. Hinn efnislegi grunnur
morð málsins í heild er þó lagður af Tómasi Guðmundssyni, en
viðbætur Brynjúlfs við Natansmál eru hins vegar sumstaðar veiga-
miklar.
Ástæður þess að Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi réðst í að
skrifa Sögu Natans Ketilssonar og Skáld-Rósu svo skömmu eftir að bók
Gísla konráðssonar leit dagsins ljós skýrir hann í niðurlagsorðum
sínum. Hann segist hafa borið saman skrif Gísla og handrit Tómasar
Guðmundssonar og við samanburðinn séð að sögunum bar í milli í
ýmsu og þótti honum handrit Tómasar fyllra um sumt. Brynjúlfur
fór því að leita frekari upplýsinga, en þá segir hann að komið hafi
fram svo margar leiðréttingar og viðbætur að nauðsynlegt var að
hans áliti að semja nýja bók.39 engin heimildaskrá fylgir þó bók
Brynjúlfs frekar en riti Gísla konráðssonar, en í texta er víða vitnað
til munnlegra heimildarmanna. Á titilsíðu bókar Brynjúlfs segir
raunar að hún sé „rituð eftir bestu fáanlegu heimildum og skilríkj-
um“ en vart er hægt að segja að hann noti „bestu heimildir“ því í riti
sínu hefur Brynjúlfur ekki nýtt sér yfirheyrslurnar yfir sakborning-
um eða önnur réttargögn úr Húnaþingi.40 Allt efni frá sýslumanns-
embætti Húnavatnssýslu tengt morðbrennunni var sent á Lands -
skjalasafnið 18. mars 1901, en hugsanlega hefur Brynjúlfur ekki
vitað af því enda ekki búið að ganga frá efninu í skrá fyrr en árið
1910.41 Handrit Brynjúlfs að sögu Natans og Skáld-Rósu var hins
vegar að mestu tilbúið síðla árs 1904 eða í ársbyrjun 1905 en útgef-
eggert þór bernharðsson20
39 Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi, Saga Natans Ketilssonar, bls. 179–180.
40 Í bók sinni Sagan af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum sem kom út í
Reykjavík á árunum 1893–1897 studdist Brynjúlfur hins vegar mjög við slík
gögn í umfjölluninni um kambsránið sem framið var á bænum kambi í Flóa
árið 1827.
41 Sjá ÞÍ. Afhendingarskrár. Sýslumenn — Sveitarstjórnir. Húnavatnssýsla — Þing -
eyjarsýsla. Afhendingarskrár: Húnavatnssýsla.
42 Lbs. Lbs. 1760, a, 4to. Brynjúlfur Jónsson. Sendibréf A–J. Bréf Guðmundar
Finnbogasonar til Brynjúlfs Jónssonar, dags. 18. mars 1905; Bréf Guðmundar
Finnbogasonar til Brynjúlfs Jónssonar, dags. 30. mars 1907. — Útgefandinn
skýrði hér vandamál við útgáfu: Lbs. Lbs. 1760, c, 4to. Brynjúlfur Jónsson.
Sendibréf A–J. Bréf Sigurðar kristjánssonar til Brynjúlfs Jónssonar, dags. 29.
nóvember 1909.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:03 Page 20