Saga - 2013, Blaðsíða 29
heimkominn hafi Natan strax farið að búa til „meðul þau er hann
ætlaði að senda vorm með Pétri að morgni.“66 Tómas á Þverá segir
þá báða hafa ætlað að Geitaskarði árla daginn eftir en Gísli kon ráðs -
son segir hins vegar í Natanssögu sinni að Natan hafi sjálfur ætlað
með meðulin að Geitaskarði næsta dag en minnist ekki á málið í
Húnvetninga sögu, ekki frekar en espólín í sínu handriti.67
Þegar rökkvaði lögðust Natan og Pétur til svefns í sömu rekkju
og sváfu andfætis í rúminu. Agnes lét Friðrik vita þegar þeir voru
sofnaðir. Sigríður, Friðrik, og Agnes réðu nú ráðum sínum um atlög-
una að Natani. Friðrik var nokkuð tregur til aðgerða þegar hann
heyrði að Pétur væri staddur á Illugastöðum og svæfi hjá Natani, en
þær Agnes og Sigríður hvöttu hann eindregið til verksins enda
byðist vart betra tækifæri. Tómas á Þverá og Brynjúlfur frá Minna-
Núpi taka fram að Agnes hafi eggjað hann fast og hert upp. Þeir
segja jafnframt að hún hafi sótt slaghamar og látið Friðrik fá hann
sem og beittan hníf, en sjálf hafi Agnes haft annan hníf og hvatt
Friðrik áfram.68 espólín og Gísli segja Sigríði hafa sótt hamarinn en
ekki kemur fram í þeirra frásögn hver sótti hníf.69
Friðrik og Agnes fóru inn í baðstofuna og læddust að rúminu
sem Natan og Pétur sváfu í saman. Friðrik laust Pétur rothögg og
kipptist hann við þegar hann dó. við það vaknaði Natan, kallaði og
bað að kveikt yrði ljós. espólín og Gísli segja að svo hafi virst sem
hann dreymdi að vorm Beck á Geitaskarði væri að gera sér eitthvað
illt og hafi spurt: „Hví gerir þú mér þetta vorm vinur?“ Og þegar
hann hefði beðið um að kveikt yrði ljós hefði hann sagt að Pétur
hefði fengið slag eða flog. Í því hefði Friðrik slegið Natan „með
hamrinum og varð rothögg í fyrstu. Lét hann þá hamarinn ganga
um hann og braut handlegg hans. Raknaði þó Natan við enn
friðrik, agnes, sigríður og natan 27
67 Lbs. Lbs. 1933 8vo. Tómas Guðmundsson, Sagan af Natan ketilssyni, bls. 82;
Lbs. JS. 123 8vo. Gísli konráðsson, Sagan af Natani ketilssyni, bls. 128; Gísli
kon ráðsson, Sagan af Natan Ketilssyni, bls. 58.
68 Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi, Saga Natans Ketilssonar, bls. 104; Lbs. Lbs.
1933 8vo. Tómas Guðmundsson, Sagan af Natan ketilssyni, bls. 82.
69 Lbs. Lbs. 2663 4to. Jón espólín, Húnvetninga saga, annar hluti, bls. 106; Lbs. JS.
123 8vo. Gísli konráðsson, Sagan af Natani ketilssyni, bls. 127; Gísli kon ráðsson,
Sagan af Natan Ketilssyni, bls. 56; Gísli konráðsson, Húnvetninga saga 2, bls. 658.
70 Gísli konráðsson, Húnvetninga saga 2, bls. 658. — Sbr. Lbs. Lbs. 2663 4to. Jón
espól ín, Húnvetninga saga, annar hluti, bls. 106–107; Lbs. JS. 123 8vo. Gísli
konráðsson, Sagan af Natani ketilssyni, bls. 130; Gísli konráðsson, Sagan af
Natan Ketilssyni, bls. 56.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:03 Page 27