Saga - 2013, Side 32
farið til bæja og tilkynnt um eldsvoðann; „sögðu Natan hafa sett
saman meðul um kvöldið er hann ætlaði með til Geita skarðs morg-
uninn eftir og haft við eld mikinn“ sem hefði „kveikt í húsinu …“81
Jón bóndi Sigurðsson í Stapakoti brá skjótt við hjá þeim Tómasi og
Brynjúlfi og fór til Illugastaða með alla menn sem hann hafði. „var
bærinn fallinn ofan er þeir komu. Fann Jón líkin í öskunni og voru
þau sviðnuð og skorpin og af Natani var brunninn annar
fóturinn.“82 Í frásögn espólíns og Gísla bregðast ótilgreindir menn
við og fara til að slökkva eldinn og „fundu lík þeirra Natans og
Péturs sviðin mjög og Natans þó meira, meira en upp til miðs svo
mjaðmar spaðarnir stóðu út berir.“83
Þannig er atburðarás morðbrennunæturinnar í Natanssögum
þeirra Jóns espólíns, Tómasar Guðmundssonar á Þverá, Gísla kon -
ráðs sonar og Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi. Frásagnir þeirra
af því sem gerðist stangast í ýmsum atriðum á við mikilvægar frum-
heimildir um málið, einkum yfirheyrslur yfir því fólki sem stóð fyrir
morðbrennunni á Illugastöðum aðfaranótt 14. mars 1828.
Frásagnir sakborninganna þriggja af morðbrennunni
Í Dóma- og þingbók Húnavatnssýslu segir að hinn 16. mars 1828
hafi hreppstjórinn í kirkjuhvammshreppi, Jón Sigurðsson í Stapa -
koti, komið á heimili sýslumanns Húnvetninga í Hvammi í vatns -
dal.84 Þar hitti hann Björn Blöndal og „tjáði honum munnlega frá að
nóttina milli þess 13. og 14da þ.m. hefði á Illugastöðum á vatnsnesi
brunnið baðstofa og inní henni bóndi sama staðar, Natan ketilsson
og vinnumaður Pétur Jónsson frá Geitaskarði, hverra beggja bein
fundist hefðu á þeim stað er þau hefðu átt að liggja en tvær stúlkur
og 1 barn hefði lifandi og óskemmd afkomist úr brunanum.“ Þar
eggert þór bernharðsson30
82 Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi, Saga Natans Ketilssonar, bls. 106. — Sbr.
Lbs. Lbs. 1933 8vo. Tómas Guðmundsson, Sagan af Natan ketilssyni, bls. 83–
84.
83 Gísli konráðsson, Húnvetninga saga 2, bls. 660. — Sbr. Lbs. Lbs. 2663 4to. Jón
espólín, Húnvetninga saga, annar hluti, bls. 107; Lbs. JS. 123 8vo. Gísli kon -
ráðs son, Sagan af Natani ketilssyni, bls. 135; Gísli konráðsson, Sagan af Natan
Ketils syni, bls. 58.
84 Gunnari erni Hannessyni sagnfræðingi og skjalaverði í Þjóðskjalasafni Íslands
eru færðar þakkir fyrir að taka að sér í frítíma sínum að vinna frumuppskrift
af yfirheyrslunum í Dóma- og þingbók Húnavatnssýslu fyrir höfund. — Staf -
setning er færð til nútímahorfs og augljós pennaglöp lagfærð án athugasemda.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:03 Page 30