Saga - 2013, Qupperneq 36
vinnumaður á prestssetrinu í vesturhópshólum í vesturhópi. Frið -
rik var „62½ þumlungur [163,5 cm] á hæð, 40½ þumlungur [105,9
cm] yfir herðar, 36½ [95,5 cm] undir hendur og 33½ [87,6 cm] yfir
um mittið, toginleitur í andliti, freknóttur með þykkt nef, bláeygður
með dökkjarpt hár afklippt.“97
Strax morguninn eftir að Björn Blöndal sýslumaður hafði fengið
vitnisburði Sigríðar og Agnesar fór hann ásamt hreppstjórum „vest-
ur að katadal, sem liggur afsíðis í miðjum fjallaklasa, og arresteraði
þar strax þann Friðrik Sigurðsson sem það umhöndlaða morð skal
framið hafa, rannsakaði þar síðan öll hús og hirslur, samt önnur
fylgsni er sáust …“ Friðrik var færður til yfirheyrslu að prestssetrinu
að Tjörn á vatnsnesi en þráaðist við að svara sýslumanni. var þá
séra Jóhann Tómasson sóknarprestur sóttur og eftir að hann „hafði
á marga vegu sett Friðriki fyrir sjónir með guðlegum fortölum að
ekkert nema enn verra vildi nú eftir þeim framkomnu bevísum
hljóta af því að þræta fyrir það morð sem hann er siktaður fyrir,
meðgengur hann óþvingaður og með iðrunarmerkjum að hann sé
sannur að sök …“98
Þau Agnes Magnúsdóttir, Friðrik Sigurðsson og Sigríður Guð -
munds dóttir voru öll sett í varðhald; Friðrik var á Þingeyrum hjá
Birni Ólsen hreppstjóra, Sigríður var á Miðhópi í víðidal hjá Pétri
Péturssyni hreppstjóra og Agnes á Stóru-Borg í vesturhópi þar til
rannsókn málsins lauk formlega 2. júlí 1828 en eftir það var hún
vistuð á kornsá í vatnsdal hjá Jóni Jónssyni hreppstjóra, þeim
hinum sama og hafði búið í Hvammi þegar hún dvaldi þar sem
barn og unglingur. Þau hittust aldrei aftur öll þrjú eftir handtökurn-
ar, þótt þau væru í örfá skipti undir sama þaki vegna yfirheyrslna,
og gátu því ekki borið saman bækur sínar um atburði eða samstillt
frásagnir sínar. Reyndar virtust þau ekki hafa haft áhyggjur af því
að morðin kæmust upp því bruninn átti að koma í veg fyrir það.
Blöndal sýslumaður yfirheyrði þau öll ítrekað næstu vikurnar til að
sannreyna framburði og reyna að fá sem gleggsta mynd af því sem
eggert þór bernharðsson34
97 Sama heimild, bls. 205.
98 Sama heimild, bls. 172.
99 Síðasta yfirheyrslan yfir Sigríði var 16. apríl en 1. maí yfir Agnesi og Friðriki.
100 Guðjón Lárusson, „Inngangur.“ Lárus Jóhannesson, Blöndalsættin. Niðjatal
Guðrúnar Þórðardóttur og Björns Auðunssonar Blöndals sýslumanns í Hvammi
í Vatnsdal. Jón Gíslason bjó til prentunar ([Hafnarfjörður]: Skuggsjá 1981),
bls. Xv.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:03 Page 34