Saga - 2013, Síða 39
að eiga við hann einn; auk þess væri Pétur þarna líka og hafi Friðrik
„ekki sagst hugsa til að pína Natan til sagnar þar þeir væru 2r en
hann ei nema einn.“114 Gengu þau svo öll inn í baðstofuna og „var
þá varla nein skíma af degi.“ Friðrik segir svo frá næsta skrefi: „Átti
Agnes að standa fyrir glugganum við rúmstokk Natans meðan ég
rotaði Pétur en Sigríður stóð á gólfinu, og ætluðu þær báðar að
fljúga á Natan ef hann yrði var við þá ég rotaði Pétur …“116 Agnes
harðneitaði þessu og sagði að hvorki hún né Sigríður hafi ætlað sér
að ráðast á Natan ef hann yrði einhvers var.117 Hvort sem konurnar
hafi ætlað sér að verja Friðrik eða ekki lagði hann „högg í höfuð á
Pétri nokkrum sinnum og heyrðist ekkert hljóð til hans“, að sögn
Sigríðar.118
Pétur lá nú rotaður í rúminu og stúlkubarnið sem var í fóstri hjá
Natani, Þóranna Rósa dóttir Skáld-Rósu, var á baðstofupallinum og
ennþá klætt.119 Agnes tók nú barnið og lét Sigríði fá það. Hún fór
með það út úr baðstofunni.120 Síðar kom í ljós að Þóranna Rósa virt-
ist ekki gera sér neina grein fyrir því sem gerðist: „Um barn það sem
… er getið um að hafi á Illugastöðum verið í fóstri er dóttir … [Rósu
Guð mundsdóttur á vatnsenda] og er nú til hennar heim komið, og
segir hún það sé á 3ja ári en farið að tala, og kveðst hún ekki hafa
getað að komist hjá henni að hún hefði neitt um það framda morð
vitað, en hún segi alltaf að Natan sé uppá [Geitas]karði eins og
henni mun hafa sagt verið.“121 Þannig virðist Þóranna litla Rósa
ekki hafa heyrt „veinhljóð“ úr baðstofunni og þar með ekki spurt
um „babba sinn“ eða verið sagt að „hrútar væru skornir“, eins og
segir í handriti Tómasar á Þverá og bókum Brynjúlfs frá Minna-
friðrik, agnes, sigríður og natan 37
115 Sama heimild, bls. 190.
116 Sama heimild, bls. 190.
117 Sama heimild, bls. 219.
118 Sama heimild, bls. 159, sbr. bls. 190.
119 Að margra áliti var Þóranna Rósa dóttir Natans en ekki Ólafs Ásmundssonar
eiginmanns Rósu, sjá t.d. Guðrún P. Helgadóttir, Skáldkonur fyrri alda II, bls.
139–140. — Þess má geta að í ævisögu Meyvants Sigurðssonar, sem var
barnabarn Þórönnu Rósu, er kafli þar sem fjallað er um samband Skáld-Rósu
og Natans og fullyrt að Þóranna Rósa hafi verið dóttir Natans, sjá: Jón Birgir
Pétursson, Bóndinn og bílstjórinn Meyvant á Eiði (Reykjavík: Örn og Örlygur
1975), bls. 11–14.
120 ÞÍ. Sýsluskjalasafn. Hún. GA/7, 2. 1827–1830. Dóma- og þingbók, bls. 159 og
190.
121 Sama heimild, bls. 234.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:03 Page 37