Saga - 2013, Page 44
félögum sem skrifuðu síðar um málið. espólín og Gísli segja að
Agnes hafi eggjað Friðrik „mjög og kvaðst sjálf skyldi að vinna ef
Friðrik æðraðist, greip hann þá hníf og stakk hann stingi marga, eftir
þeirra eigin sögn, en sumir segja að Agnes ynni og á honum og það
ætlum vér satt vera.“151 Athygli vekur að espólín og Gísli segjast
hafa fregnir af frásögn sakborninga um gjörðir Friðriks en trúa
henni ekki og þykjast vita betur um aðkomu Agnesar. Reyndar
bendir ekkert til þess í ritum þeirra að þeir hafi haft beinan að-
gang að sjálfum yfirheyrslunum. Tómas á Þverá og Brynjúlfur frá
Minna-Núpi eru af dráttarlausari í framsetningu sinni en espólín
og Gísli: „Lögðu þau nú til hans með hnífunum en hann snaraðist
fram úr rúminu; réðust þau þá á hann bæði og stungu hann sem
tíðast svo hann leið í ómegin; hugðu þau hann dauðan. Þá vitkaðist
hann aftur til hálfs og mælti nokkur orð í óráði. Þau stungu hann
þá enn marga stingi og kom svo að þau gengu af honum dauð -
um.“152
engum vafa er undirorpið að Agnes Magnúsdóttir tók ekki þátt
í morðinu á Natani ketilssyni á þann hátt sem þeir espólín, Gísli,
Tómas og Brynjúlfur lýsa. Um það er allt sakafólkið sammála.
Agnes flúði meira að segja baðstofuna þegar Friðrik tók að munda
hnífinn. vissulega átti Agnes sinn örlagaríka þátt í morðbrennunni
og reyndi ekki að koma í veg fyrir hana. Þannig er engin ástæða til
þess að draga úr hennar hlut, en hún stóð ekki jafn grimmilega að
verki og fjórmenningarnir segja. en þáttur Agnesar í aðdraganda
morðvígsins hefur einnig verið miklaður í frásögnum þeirra þar
sem því er jafnvel haldið fram að hún hafi verið ástfangin af Natani
ketilssyni en sú ást hafi síðan breyst í hatur.
Blinduð af ást og hatri?
Sú saga virðist fljótt hafa komist á kreik að einhverskonar kynferðis-
eða ástarsamband hafi verið milli Agnesar Magnúsdóttur og Natans
eggert þór bernharðsson42
151 Gísli konráðsson, Sagan af Natan Ketilssyni, bls. 57. — Sbr. Gísli konráðsson,
Húnvetninga saga 2, bls. 658–659. — Sbr. Lbs. Lbs. 2663 4to. Jón espólín,
Húnvetninga saga, annar hluti, bls. 107; Lbs. JS. 123 8vo. Gísli konráðsson,
Sagan af Natani ketilssyni, bls. 130–131.
152 Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi, Saga Natans Ketilssonar, bls. 105. — Sbr.
Lbs. Lbs. 1933 8vo. Tómas Guðmundsson, Sagan af Natan ketilssyni, bls. 82–
83.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:03 Page 42