Saga - 2013, Blaðsíða 45
ketilssonar. Þannig segir Jón espólín í Árbókunum að hún hafi ekki
einungis verið vinnukona hans heldur einnig „fylgikona“. Jafnframt
segir espólín að fyrir morðið hefði Friðriki og Natani „borið nokkuð
í milli áður um kvennamál“ en ekkert kemur fram um það í hverju
sá ágreiningur á að hafa verið fólginn.153 Þetta er ritað um 1830. Í
handriti sínu að Húnvetninga sögu hefur espólín heldur bætt við
söguna og segir að Friðrik hafi haft hug á Sigríði bústýru. Natan hafi
fundið það og þóst „mundi ná henni til handa honum. er sagt að
hann gæfi honum til nokkuð af silfurpeningum. … Friðriki grimm -
aðist mjög við Natan, þótti hann ei efna orð sín að hann fengi
Sigríðar, en byggði sæng með henni sjálfur löngum, og báðum er
sagt Natan héti þeim eiginorði, Sigríði og Agnesi, en þær héldu að
svik ein mundu verða. Bundust þær þá í því með Friðriki að fyrir-
koma Natani er færi gæfist.“154 Í Húnvetninga sögu Gísla konráðs -
sonar er allur þessi sami texti með smávægilegum breytingum á
orðalagi.155
Sagan af Natan Ketilssyni eftir Gísla konráðsson, sem gefin var út
á prenti árið 1892, er að þessu leyti samhljóða handriti því sem Gísli
skrifaði um 1860 og þar er allt að finna sem kemur fram í handriti
espólíns að Húnvetninga sögu.156 en til viðbótar eru nokkrar áhrifa-
miklar setningar sem eiga að sýna afstöðu Agnesar og aðstæður
hennar, og reyndar einnig viðhorf Sigríðar: „orð hafði á komið að
Natan fengi Agnesar en það var almæli að hann ætlaði að eiga
Sigríði. … en sagt var það að Natan sængaði stundum með Sigríði
bústýru sinni, reiddist Agnes því og þóttist vita að ei ætlaði hann að
ganga með sér … [H]éldu þær og báðar, Agnes og Sigríður, að hann
mundi svíkja sig þar hann hafði báðum eiginorði heitið, kom svo að
Sigríður varð mjög sinnandi Friðrik og bundust þær í því með hon-
um að fyrirkoma Natani þá færi gæfist.“157 Hér hefur orðið sú breyt-
ing að það orð hefur komist á að Natan ætlaði að kvænast Agnesi en
almæli sé að hann hyggist kvongast hinni ungu Sigríði sem hann
sængaði stundum hjá og því hafi Agnes reiðst. Þá er Sig ríður orðin
ástfangin af Friðriki í þeirri frásögn sem sett var á blað um þremur
friðrik, agnes, sigríður og natan 43
153 Jón espólín, Íslands árbækur í söguformi XII, bls. 161.
154 Lbs. Lbs. 2663 4to. Jón espólín, Húnvetninga saga, annar hluti, bls. 105.
155 Gísli konráðsson, Húnvetninga saga 2, bls. 607, 654.
156 Sjá Lbs. JS. 123 8vo. Gísli konráðsson, Sagan af Natani ketilssyni, bls. 111–112
og 119–122.
157 Gísli konráðsson, Sagan af Natan Ketilssyni, bls. 49 og 53.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:03 Page 43