Saga - 2013, Blaðsíða 50
Auk þess taldi Sigríður að efnaleysi þeirra Friðriks að byrja búskap
hamlaði því að þau gætu gengið í hjónaband en „féll Friðrik þá upp
á að best væri að drepa Natan og ná því sem hann ætti.“165 Nokkru
seinna kom Agnes heim og sagði Sigríður „henni þá frá þessari
ráðagjörð Frið riks. Gegndi hún þá engu þar til öðru en bað guð að
varðveita hann frá þessu.“166 Þannig er rétt að Friðrik Sigurðsson
lagði hug á Sigríði og vildi stofna til hjúskapar með henni þótt hann
hafi seinna ekki viljað „viðkannast að hann nokkurntíma hafi full-
komlega beðið Sigríðar, en einhverntíma hafi það komið lítilfjörlega
í tal …“167 Reyndar virðist ekki hafa farið mikið fyrir samdrætti
þeirra því Agnes Magnúsdóttir kvaðst „ei tilvita að neitt tilhugalíf
hafi verið á milli þeirra Sigríðar og Friðriks.“168 Á hinn bóginn er
augljóst af frásögn Sigríðar að Agnes vissi ekkert um morðhug-
myndir Friðriks í upphafi og átti því ekki frumkvæði að þeim
aðgerðum. Hins vegar viðurkenndi hún að hafa sagt við Sigríði í
bræði haustið 1827 „að það væri mátulegt að brenna Natan ellegar
gefa honum inn …“169 Raunar tók Friðrik „Sigríði mikinn vara fyrir
að láta Agnesi af þessu vita …“170 Síðar varð Agnes fullgildur þátt-
takandi í undirbúningi morð brenn unnar og lagði á ráðin.
Reyndar virðist Friðrik Sigurðsson ekki hafa verið við eina
fjölina felldur því hann hafði verið í tygjum við Þórunni
eyvindsdóttur, 32 ára vinnukonu í katadal og móður fjögurra barna
sem hún átti með jafnmörgum mönnum. Þórunn sagði að hann
hefði „heimuglega verið búinn að lofa að ekta sig þegar hann fengi
þar til aldur, en nú á yfirstandandi vetri [1827–1828] (hvað snemma
kveðst hún ei muna) hafi hann afsagt sér um það, og kveðst hún
hafa haft grun um að hann mundi vera farinn að hallast að Sigríði á
Illugastöðum, án þess hún vissi neina vissu um það, og kveðst nú
Þórunn ólétt vera að völdum Friðriks.“171 Foreldrar Friðriks
staðfestu í yfirheyrslunum „að farið hafi … að kólna millum þeirra“
Friðriks og Þórunnar.172 kristjana, barn Þórunnar og Friðriks, fædd-
eggert þór bernharðsson48
166 Sama heimild, bls. 155–156.
167 Sama heimild, bls. 250.
168 Sama heimild, bls. 163.
169 Sama heimild, bls. 246.
170 Sama heimild, bls. 186–187.
171 Sama heimild, bls. 180.
172 Sama heimild, bls. 239, sbr. bls. 256.
173 ÞÍ. Prestþjónustubók. Tjörn á vatnsnesi 1816–1863, bls. 11 og 97.
174 Reyndar var megintilgangur Friðriks með förinni á vatnsenda að leita „að
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:03 Page 48