Saga - 2013, Síða 55
andúð Agnesar á Natani aukast og hún varð virkari í undirbúningi
morðsins, jafnvel örvæntingarfull. Friðrik segir að á Ásbjarnar stöð -
um hafi hún lagt „mikið að mér að gefast ei upp við þetta, og gaf ég
henni kost á því ef Daníel vildi styrkja mig til þess hennar vegna, og
lofaði að finna hann um leið ég færi út í kaupstað degi síðar.“193
Daníel heitmaður Agnesar vildi gera þetta fyrir hana en ekkert varð
þó úr því að hann tæki beinan þátt í morðbrennunni þar sem hús-
bóndi hans veitti honum ekki burtfararleyfi frá Geitaskarði í það
skipti.194 Sigríður segir einnig að eftir flóttann hafi Agnes „mikið
hert sig upp til framkvæmdar morðinu og beðið sig fyrir að afstýra
þessu ekki lengur og leitt sér fyrir sjónir skammir þær er hún og
Sigríður fengi hjá Natan …“195 Skammirnar hvíldu svo þungt á
Agnesi að þegar hún stóð yfir líki Natans í baðstofunni morðnóttina
talaði hún til þess og sagði að hann myndi ekki framar ausa hana
eða annað kvenfólk skömmum.196 Og Agnes hélt því fram að „til-
gangur sinn með morðið … einasta hafi verið hatur til Natans; en
engin ábatavon, áður en Friðrik farið hafi að framkvæma morðið.“197
Hversu húsbóndinn á Illugastöðum var skapbráður og gat verið
geðillur á heimilinu var þannig ein undirrót Natansmála. Sögur,
munnmæli og orðrómur um blinda ást sem hafi snúist í blint hatur
hljóta því að vera hugarburður einn ef mark er takandi á þeim frum-
heimildum sem til eru um málið og vitnisburði þess fólks sem allt
snerist um.
Að lokum
Dæmin tvö úr Natansmálum, sem hér hafa verið notuð til að varpa
ljósi á heimildagrunn morðbrennunnar á Illugastöðum, hverfast að
nokkru leyti um Agnesi Magnúsdóttur og þátt hennar í morðvíginu
og voðaeldinum, atburðarásina morðnóttina 14. mars 1828 og meint
samband hennar og Natans ketilssonar. Unnið hefur verið með frá-
sagnir í Húnvetninga sögum þeirra Jóns espólíns og Gísla konráðs -
sonar, Natanssögu Gísla konráðssonar í nokkrum handritum og
útgefið rit, Natanssöguhandrit Tómasar Guðmundssonar á Þverá í
friðrik, agnes, sigríður og natan 53
194 Daníel Guðmundsson staðfesti þetta, sjá ÞÍ. Sýsluskjalasafn. Hún. GA/7, 2.
1827–1830. Dóma- og þingbók, bls. 199. Agnes staðfesti einnig að hún hefði
óskað eftir hjálp kærasta síns, Daníels, bls. 197.
195 Sama heimild, bls. 196.
196 Sama heimild, bls. 246.
197 Sama heimild, bls. 219.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 53