Saga - 2013, Side 63
Til grundvallar liggja bréf skrifuð 1817–1829 en sjónum er eink-
um beint að einu ári, 1824, og það notað til þess að kafa dýpra í
bréfsefnið og skipulag bréfa. Þetta ár er valið vegna þess að það er
einn af vendipunktunum í lífi Sigríðar Pálsdóttur. Tímabilið í heild
miðast við upphaf bréfaskrifanna, árið 1817, en ártalið 1829 við
brottför Sigríðar af Héraði. Þá var kvennaheimilið á Hall freðar stöð -
um endanlega leyst upp.
Bréfasafnið og helstu leikendur
Bréfasafn Páls er mikið að vöxtum, ekki aðeins vegna fjölda
bréfanna heldur einnig árafjöldans sem það nær yfir, 1817 til 1877,
þ.e. sextíu ár alls. Þá má einnig nefna fjölbreytni bréfanna og þann
ólíka veruleika og reynslu sem þau endurspegla.9 Í safni Páls
mætast bréf kvenna sem létu skrifa fyrir sig af því þær fyrirvörðu
sig fyrir rithönd sína og stíl,10 bréf ungra pilta sem voru að stíga sín
fyrstu skref í stórborginni kaupmanna höfn og þurftu að dressa sig
upp í takt við tísku og tíðaranda, bréf systra hans um smokkóttar
gimbrar, ungfolann Stjarna Blesuson og afrek á sviði lærdóms og
handiðna. Þetta eru bréf skrifuð af barni, ungum manni, ráðsettum
skrifara amtmanns, gömlum manni. Á þann hátt sýna þau hreyf-
ingu, tímann sem líður og felur í sér breytingar — jafnvel þegar
hann virðist standa kyrr.
Páll fæddist á Lambastöðum á Seltjarnarnesi, heimili Geirs
vídal ín biskups ömmubróður síns 9. mars 1806, en fluttist sama ár
með foreldrum sínum, Malene Jensdóttur og Páli Guðmundssyni,
og móðurömmu sinni, Sigríði (Jónsdóttur vídalín) Ørum, austur á
Hérað þar sem faðir hans tók við embætti sýslumanns Norður-
Múlasýslu úr hendi föður síns árið 1807. Sýslumannsembættið gekk
næstum að erfðum því afi og langafi Páls Guðmundssonar höfðu
einnig verið sýslumenn þar eystra.11 Þau hófu fljótlega búskap á
Hallfreðarstöðum í Hróarstungu þar sem við bættust fjögur börn,
Sigríður, Þórunn, Stefán og Siggeir. Árið 1815 dó sýslumaðurinn og
kvennabréfin á hallfreðarstöðum 61
9 Bréfasafn Páls er varðveitt á handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskóla -
bókasafns og nær yfir safnmörkin Lbs. 2409–2415 4to.
10 Sjá Lbs. Lbs. 2415 a 4to. Andría María Andrésdóttir til Páls Pálssonar 31. des.
1870 og 6. okt. 1872.
11 Sýslumennirnir voru Guðmundur Pétursson (1748–1811), Pétur Þorsteinsson
(1720–1795) og Þorsteinn Sigurðsson (1678–1765).
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 61