Saga - 2013, Page 64
tveimur árum síðar var Páll yngri, þá ellefu ára, sendur norður um
land suður til Reykjavíkur, þar sem hann staldraði við hjá biskupn-
um frænda sínum og öðru venslafólki. Þaðan hélt hann áfram
austur að Odda á Rangár völlum þar sem Steingrímur Jónsson pró-
fastur og kona hans, valgerður Jónsdóttir biskupsekkja, tóku við
honum til fósturs og menntunar. Stein grímur var í senn góðvinur
foreldra Páls og einn guðforeldra hans. Páll útskrifaðist sem stúdent
úr heimaskóla Steingríms árið 1823 og varð sama ár skrifari Bjarna
Þorsteinssonar amtmanns. Það varð ævistarf hans en síðustu árin
fékkst Páll við umsýslu og viðgerðir gamalla bóka og handrita.12
Þótt fjölskyldan hafi löngu áður en Páll fluttist suður skrifað bréf
til vina og ættingja urðu tímamót við brottför hans árið 1817 því þá
tóku móðir hans og amma, systkini og fleiri ættingjar upp
bréfaskipti við hann. Fyrstu bréfin eru skrifuð á jólum 1817. Þá hafði
Páll þegar sent bréf að sunnan og sagt af ferðum sínum. Þau bréf
hafa ekki varðveist, og á það raunar við um stóran hluta þeirra bréfa
sem hann skrifaði um ævina og því er rödd Páls oft ekki annað en
óljós endurómur í bréfum annarra.
Barnið sem meðtók bréfin suður í Odda hefur haft hugsun á að
halda þeim til haga, ef til vill undir áhrifum af bókum, handritum
og skjalasafni fósturforeldra sinna. eða af þörf fyrir að halda saman
þessum bréfum sem drógu upp mynd af veröldinni heima, veröld
sem hann var ekki lengur þátttakandi í — nema rétt á meðan hann
las bréfin.
eftir því sem árin liðu fjölgaði bréfavinum Páls. Skólafélagar úr
Odda sem fóru hver í sína áttina, vinir og kunningjar sem hann
kynntist á Reykjavíkurárunum, prestar og embættismenn hér og þar
um landið, konur og karlar sem hann skrifaði í leit að gömlum bók-
um og handritum. Hundruð bréfa.13
Stærsti einstaki bréfritarinn í safni Páls er Sigríður systir hans.
Hún skrifaði honum um 250 bréf frá því hún var átta ára aldri árið
erla hulda halldórsdóttir62
12 Um helstu æviatriði Páls sjá einkum Skrifarinn á Stapa: Sendibréf 1806–1877.
Íslenzk sendibréf. Finnur Sigmundsson bjó til prentunar (Reykjavík: Bókfells -
útgáfan 1957).
13 Sendibréfasafn Páls Pálssonar telur hátt í 1600 bréf. Í vélrituðum skrám yfir bréf-
ritara (sem finna má í bréfaöskjunum) er fjöldi bréfa skrifaður aftan við hvern
bréfritara — samkvæmt því eru bréfin 1578. Upplýsingar fengnar hjá Braga
Þorgrími Ólafssyni, fagstjóra á Handritadeild Landsbókasafns, tölvupóstur 3.
júní 2013. Braga er þökkuð aðstoð og ábendingar við ritun þessarar greinar.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 62