Saga - 2013, Side 65
1817 til þess er hún lést tæplega 62 ára 1871. Bréfin ná því yfir hér
um bil alla „bréflega“ ævi Páls, en hann lést 1877.
Í börnum Melene Jensdóttur og Páls Guðmundssonar kom sam-
an annars vegar valdamikil og auðug ætt sýslumanna og presta á
Héraði og hins vegar systkinin vídalín sem voru ekki auðug að fé
en bjuggu yfir menningar- og félagsauði sökum menntunar og
ætternis. Sigríður var ekkja eftir danskan verslunarmann, hafði
misst hann árið 1788 eftir fárra ára hjónaband og bjó um hríð eftir
það hjá móðurbróður sínum Skúla Magnússyni fógeta í viðey.
Bróðir hennar, Jón vídalín stýrimaður, sigldi um heimsins höf í 40
ár og var um tíma settur sýslumaður á eskifirði, en Geir bróðir
hennar varð einn valdamesti maður landsins þegar hann tók við
embætti biskups að Hannesi Finnssyni látnum 1796. Það var á heim-
ili hans sem Sigríður dvaldi lengst af með dótturina Malene sem ólst
þar upp innan um lærdómspilta, leikskáld og skrifandi fólk.14
Mæðgurnar þekktu því vel mátt þekkingarinnar og mikilvægi hins
skrifaða orðs og hvernig mátti beita því.
Bók með bréfum úr safni Páls var gefin út árið 1957, ein af svo-
kölluðum bréfabókum Finns Sigmundssonar. Bókinni var ætlað að
gefa „hugmynd um Pál stúdent, venzlafólk hans og vini, hugsunar-
hátt og lífskjör manna á þeirri öld, sem fóstraði Pál og samtíð hans.
Allt er þetta að vísu í brotum, skyndimyndir úr daglegu lífi, en ekki
samfelld saga.“15 enda er það eðli bréfa og bréfasambanda að þau
séu eins og tímasnið, eða skyndimyndir frá tilteknum degi, við -
burði, tímabili. Þau segja aldrei alla söguna því þótt bréfasambönd
sýni ákveðna samfellu einkennast þau ekki síður, og jafnvel enn
frekar, af rofi og þögnum. engin bréf berast eitt árið; einhver deyr
eða hættir að skrifa tímabundið eða fyrir fullt og allt. Bréf mömmu
ná til að mynda yfir sex og hálft ár, frá jólum 1817 og fram í maí
1824. Bréf ömmu ná frá 1817 til 1828 og undir lokin, þegar hún veit
að dauðinn er skammt undan, biður hún, kaldhæðinn og snjall bréf-
ritari, dóttursoninn að hætta ekki að skrifa sér fyrr en „þu sanfrettir
eg sie daud.“16 Fyrir kaldhæðni örlaganna svaraði Páll þessu bréfi
kvennabréfin á hallfreðarstöðum 63
14 Um Geir biskup má lesa í Geir biskup góði í vinarbréfum 1790–1823. Íslenzk
sendibréf vII. Finnur Sigmundsson bjó til prentunar (Reykjavík: Bókfells -
útgáfan 1966). Sjá einnig Skrifarinn á Stapa.
15 Skrifarinn á Stapa, bls. 11.
16 Lbs. Lbs. 2412 a 4to. Sigríður Ørum til Páls Pálssonar 6. mars 1828.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 63