Saga - 2013, Page 70
Þetta má glöggt sjá á bréfunum sem skrifuð eru á Hallfreðar -
stöðum. Stundum féllu ferðir óvænt. Mamma skrifar til dæmis 4.
maí 1824 að hún „heiri nu ad ferd falli til nordurlands sest eg þvi
nidur ad para þér línu iafn vel þo eg viti ad hun mun ei firen seint
og sidar komast til þin“.29 Amma skrifar mikilvægt bréf upp á von
og óvon 21. júní sama ár og segir: „ei veit eg en nu med hvurnin eg
muni koma sedli þessum hvurt heldur med posti edur med Þor -
steini fra HelguStödum“ sem kannski var á leið suður að vígjast til
„capelans“. Í ágúst sendi hún bréf með Magnúsi eiríkssyni, sem var
á leið suður, og þakkaði sendingar og bréf sem höfðu komið austur
hvor með sínum ferðalanginum. Og í byrjun september skrifar hún
„einasta til ad lata þig sia ad eg en nu er törandi.“ Þá féll ferð með
séra Benedikt aðstoðarpresti á kirkjubæ sem ætlaði norður að
Möðruvöllum. Þaðan átti bréfið að komast áfram suður til Páls með
„haustmønum“.30 Þannig var þetta ekki aðeins árið 1824 heldur
bæði á undan og eftir, og af bréfum Sigríðar systur Páls allt til
síðasta dags má sjá að þau voru send með vinnumönnum á ferð eða
vinum og kunningjum af næstu bæjum.
Hvað sem líður óvæntum ferðum má sjá mynstur í bréfaskrifum
kvennanna á Hallfreðarstöðum, því langflest bréfanna eru skrifuð í
janúar og haldast þannig í hendur við vetrarferð póstsins. Næst
kemur júnímánuður og bréf sem þá eru skrifuð fara oftast í sumar-
ferð póstsins. Sigríður Ørum skrifaði dóttursyni sínum samtals 38
bréf 1817–1828, þar af átta í janúar og sjö í júní. Malene skrifaði syni
sínum 17 bréf 1817–1824. Þar af voru fjögur skrifuð í janúar og
fjögur í júní.
en fleira kom til svo skrifa mætti bréf en póstsamgöngur og til-
fallandi ferðir. Til þess þurfti þekkingu á því hvernig á að móta stafi
og stíla bréf. Og fyrir hendi þurftu að vera pennar og blek, pappír,
innsigli og vax, svo nokkuð sé talið.31
erla hulda halldórsdóttir68
29 Lbs. Lbs. 2411 a 4to. Malene Jensdóttir til Páls Pálssonar 4. maí 1824.
30 Lbs. Lbs. 2412 a 4to. Sigríður Ørum til Páls Pálssonar 21. júní, 12. ágúst og 5.
september 1824.
31 Góð umfjöllun um þá efnislegu hluti sem þurfti til þess að skrifa bréf er í grein
Nigel Hall, „The Materiality of Letter Writing. A Nineteenth Century Perspec -
tive“, í Letter Writing as a Social Practice. Ritstj. David Barton og Nigel Hall
(Amster dam/Philadelpia: John Benjamins 2000), bls. 83–108. Sjá einnig Susan
Why man, The Pen and the People, bls. 19–23.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 68