Saga - 2013, Page 75
tryggja þurfti Stefáni og Siggeiri góða heimakennslu. Þær mæðgur
höfðu einkum áhyggjur af Siggeiri sem var svolítið frakkur, spilltur
af eftirlæti, fannst þeim, eftir að hafa verið í fóstri á valþjófsstað og
Arnheiðarstöðum frá því hann var kornabarn. „[Æ] han Siggeir
stendur firir briostinu á mier“, skrifaði amma í nóvember 1824
þegar Malene var dáin.50 Að endingu fylgdi Siggeir sjálfur með
bréfum að austan norður, suður og vestur um land til Páls á
Arnarstapa, því Bjarni Þorsteinsson amtmaður gerði vel við sína
gömlu vini og tók drenginn til sín árið 1826 þar sem hann hlaut
viðeigandi menntun og fór síðar í Bessastaðaskóla — og þeir Stefán
báðir.
Systurnar sátu heima og lærðu af ömmu og mömmu þau verk
sem nauðsynlegt þótti að konur kynnu og það litla sem til boða stóð
af bóklegu námi. Hvað skriftina varðar nutu þær einnig góðs af
frændum sínum á nálægum bæjum, svo sem Sigurði Guðmunds -
syni, sem áður er nefndur, og einnig Sigfúsi Árnasyni frá kirkjubæ.
Hann léði frændsystkinum sínum rithönd sína í nokkrum bréfum
og skrifaði sjálfur bréf til Páls þar til hann drukknaði í Lagarfljóti
1822.51
Þótt systurnar skrifuðu ekki með eigin hendi hófst markviss
þjálfun þeirra, og Stefáns bróður þeirra, með bréfum skrifuðum í
þeirra nafni á jólum 1817. Bréfin þrjú eru með sömu hendi og upp-
setningin er hin sama þótt hvert barn einkenni bréf sitt með efnisvali
og bréfritari gæti þess að ávarpsorð og kveðjur séu ekki nákvæm -
lega hin sömu. Sigríður sem er átta ára segir „hiartkæri Brodir“,
Þórunn sex ára „besti Broder“ og Stefán fimm ára „elskuleigi bród-
ir“. Í stað bæjarnafns og dagsetningar, sem bæði amma og mamma
skrifa undir bréf en ekki við upphaf þess, stendur einfaldlega
„Heima“. Það er móðir þeirra Malene sem skrifar.52
kvennabréfin á hallfreðarstöðum 73
50 Lbs. Lbs. 2412 a 4to. Sigríður Ørum til Páls Pálssonar 23. nóvember 1824.
51 Sigfús Árnason var sonur Bjargar Pétursdóttur og séra Árna Þorsteinssonar í
kirkjubæ. Björg móðir hans var afasystir barnanna á Hallfreðarstöðum, systir
Guðmundar Péturssonar sýslumanns. Madame Björg er hún iðulega kölluð í
bréfum, stundum afasystir.
52 ekkert bréfanna er dag- eða ársett en miðað við efni bréfs Sigríðar er ljóst að
það er skrifað á jólum 1817. Malene segir í sínu bréfi að systurnar vilji skrifa
sjálfar og því eðlilegt að gera einnig ráð fyrir bréfi frá Þórunni 1817. Stefán er
ekki nefndur, en uppsetningin og hönd Malene bendir til 1817 þótt vissulega
gæti það verið ritað síðar. Bréf Malene sjá Lbs. Lbs. 2411 a 4to. Malene Jens -
dóttir til Páls Pálssonar annan dag jóla 1817.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 73