Saga - 2013, Page 100
láta lögreglustjóra fela virtri yfirhjúkrunarkonu að vinna þetta verk
fyrir sig.
en fleira kom til. Í janúar 1940, rösku ári áður en sið ferðis -
rannsóknin hófst, hafði Hermann skipað Agnar kofoed-Hansen
lögreglustjóra, aðeins 24 ára að aldri. Á hættu- og stríðstímum taldi
hann æskilegast að maður með herþjálfun stjórnaði Reykja víkur lög -
regl unni og styrkti liðsagann. Á unglingsárum sínum hafði Agnar
tengst Flokki þjóðernissinna, nasista, og síðar unnið náið með Þjóð -
verjum að íslenskum flugmálum. Þótt Agnar nyti álits sem afbragðs
flugmaður og flugmálaráðunautur ríkisins, grunaði ýmsa ráða -
menn að hann væri hliðhollur Þjóðverjum og treystu honum ekki
fyllilega af þeim sökum. Áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum efuðust
auk þess um hæfni hans til að gegna embætti lögreglustjóra, vegna
þess að hann hefði ekki lært lögfræði og væri alltof ungur og
reynslulaus til að hafa mannaforráð. Hermann hefði enn einu sinni
misbeitt ráð herravaldi sínu til að hygla skjólstæðingi Framsóknar -
flokksins, manni sem orðrómur segði launson hans. Samskipti lög-
reglustjóra við bresku setuliðsstjórnina voru líka af leit. Setuliðs -
foringjar töldu Agnar ekki aðeins vin Þjóðverja heldur stækan nas-
ista og jafnvel erindreka þýsku leynilögreglunnar. Þó að allar þessar
grunsemdir í garð Agnars kunni að hafa verið rangar, gæti
Hermann hafa óttast að framganga lögreglustjóra í ástandsmálum
vekti tortryggni Breta og sumra forystumanna stjórnarflokkanna,
þar á meðal ráðherra.15 Því væri einnig hyggilegra af þeirri ástæðu
að láta yfirhjúkrunarkonuna Jóhönnu knudsen um siðferðisrann-
sóknina, enda liti hún ástandið sömu augum og lögreglustjórinn og
hann sjálfur.
Í mars 1941 hófst Jóhanna handa við rannsóknina, sem beindist
að einstaklingum er skipta má í fjóra aðalflokka eftir skrá hennar:
1 Fullveðja konur og sjálfráða unglingsstúlkur sem ekkert höfðu
til saka unnið að lögum.
þór whitehead98
15 Þór Whitehead, Ófriður í aðsigi. Ísland í síðari heimsstyrjöld (Reykjavík: Almenna
bókafélagið 1980), bls. 200–204; Þór Whitehead, Milli vonar og ótta. Ísland í síðari
heimsstyrjöld (Reykjavík: vaka-Helgafell 1995), bls. 305–306; Þór Whitehead,
Bretarnir koma, bls. 235 og 251–252; Jóhannes Helgi, Lögreglustjóri á
stríðsárunum. Agnar Kofoed-Hansen rekur minningar sínar (Reykjavík: Almenna
bókafélagið 1981), bls. 193–204; „vinstri veitingar“ f (forystugrein), Vísir 17.
september 1941, bls. 2.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 98